Flissa að pungrakstri.
Borða vöfflur, drekka mjólk og láta mér líða vel í alla staði.
Baka vöfflur fyrir Nornina og passa uppá að hún borði eitthvað.
Ég var að borða sinkuhorn með bestu lyst...var orðin ískyggilega svöng.
Ég var að borða skinkuhorn líka. Og dillaði mér við Doors á meðan.
Ég dillaði mér ekki neitt, starfsfólkið í bakaríinu hefur vinsamlegast beðið mig um að hætta því á annatímum.
Starfsfólkið í bakaríinu sem ég fór í mætti nú alveg dilla sér svona stundum. Þvílíkt og annað eins samansafn af fýlupokum hef ég aldrei áður séð.
Ég var að glósa úr hverjum kafla fyrir sig úr Gísla sögu Súrssonar.
Er núna að taka smá hlé.
Mun bráðlega fara aftur að glósa.
Var að þvo á mér hárið í eldhúsvaskinum sökum baðleysis á heimilinu.
Ég var að lofa sjálfri mér að fara nú að sofa. Stend vonandi við það. Starir þegjandi út í loftið
Ég var að telja hlutina í minni eigu sem gefa frá sér blátt ljós.
Þeir eru sex talsins.
Bryðja hálsmola sem ég hélt að væru frá Opal en einhver ólukku auðvalds dindill hefur farið að framleiða í alveg eins umbúðum og kallað Palo. Ég hefði skilað þeim ef þeir væru ekki svona góðir
Kvíla mig eftir að hafa tekið til. Allt glansandi hreint og fínt og útlendingarnir á leiðinni frá Keflavík.
Velta fyrir mér hvaða útlendinga Hundslappadrífa var að tala um.
Útlendingar sem skráðu sig í gistingu gegnum þá eðlu síðu www.couchsurfing.com Grikki og tveir Skotar. Koma með væna flösku af maltviskíi fyrir mig. Gaman, gaman.
Ég var að klára skóladaginn, er samt enn í skólanum... undarlegt það.
Í dag fékk ég fjólubláar strípur í hárið.