Talar svo vel um Sundlaug, að allir nærstaddir fá ekka og fara síðan að gráta yfir hvað þetta er dásamlegur maður og mikill friðarhöfðingi.
Talar svo vel um Sundlaug, að allir nærstaddir fá ekka og fara síðan að gráta yfir hvað þetta er dásamlegur maður og mikill friðarhöfðingi.
Þurrkar tár úr auganu Ohh, hann Sundlaugur er svo æðislegur. Brestur í óstöðvandi grát
Ljómar upp, roðnar óstjórnlega, borar annarri stórutánni ofan í gólfið og stekkur hæð sína
Sko hann Sundi er ekki bara æðislegur hann er geggjaðislega skorinyrtur skáldabróðir minn og karl krapinu hvernig sem á málin er litið. Algör Megamóðurserðir sem sér í gegn um allt og alla á augabragði og kallar ekki allt ömmu sína.
Akkúrat, amma..... ég meina Nafni.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Afsakið hr. Sundmaður. Er þetta rétt sem sagt er að þér séuð annálaður mæðraserðir? Eða er farið með ósannindi þér til handa?
Mér finnst þú vera æði.
Afsakið hr. Sundmaður. Er þetta rétt sem sagt er að þér séuð annálaður mæðraserðir? Eða er farið með ósannindi þér til handa?
Kæri Doofus, afsakaðu kjarnyrt málfar félaga míns Nafna, hafi það stuðað þig á einhvern hátt. Flestir hefðu líklega orðað það svo að ég væri góður til undaneldis. Svarið er já, ég er móðurserðir rétt eins og hver annar karlmaður sem getið hefur barn við konu. Viðkoma er góð hjá okkur Vatne-mönnum og sjálfur er ég barnmargur maður og eins og eins og sagt er: Ei verður barn nema faðir móður serði.
Kímir ákaft Óskaplega var þetta skemmtilega að orði komist, frændi. Talar vel um allt & alla
Kæri Doofus, afsakaðu kjarnyrt málfar félaga míns Nafna, hafi það stuðað þig á einhvern hátt.
Ég hugsa að það dugi nú ekkert minna en eitt gott raflost til að stuða þann mann....
Kæri Doofus, afsakaðu kjarnyrt málfar félaga míns Nafna, hafi það stuðað þig á einhvern hátt.
Ég hugsa að það dugi nú ekkert minna en eitt gott raflost til að stuða þann mann....
Líklega er það rétt hjá þér, Ugla mín, hann er sjálfur sorakjaftur.
Ég vil tala fallega um erkióvin minn; Hexíu. Hún er svakalega snjöll í að finna upp leiðir til að stela happapeningnum og það heldur gamalli önd við efnið. Ég þarf stöðugt að vera á varðbergi og sjá fyrir fram hvað hún gerir næst. Það má eiginlega segja að hún sé bezti óvinur minn. Stekkur hæð sína
Ég vil tala vel um Harald Austmann og geri það hér með.....
ræskir sig vandræðalega
Hann er hryllilega fyndinn og sniðugur og ég vil að hann fari að koma til baka.
Já, þessu er ég sammála. Hvar er karlanginn eiginlega?
Haraldur þessi öðlingur þurfti því miður að skreppa í geislameðferð þar sem aukaverkanir lyfjagjafarinnar voru blessuðum gamla manninum um megn. Lungnakrabbameinið var sem betur fer ekki of langt komið og enn er lífsvon sé fyrir okkar elskaða Harald. Við skulum öll bæði tala og hugsa hlýlega til Austmannsins hugumkæra á þessu svo mjög erfiða tímabili lífs hans sem reykingamanns. Megi hann ná fyrri styrk og lungnagetu svo hann geti enn sem áður verið öllum Bagglýtingjum og þá sérlega þeim yngri, sú fyrirmynd sem hann óneitanlega hefur verið.