Hann hefur brennt þau, af ótta. Óttaslegnir menn dragast oft á braut glæpa. Lögreglulið Reykjavíkurborgar mun finna þá. Þá verða þeir enn hræddari. Ég man eftir að hafa orðið hræddur við ótuktarorm í grunnskólanum. Þar lærði ég að lesa og skrifa. Því skrifa ég þetta hér án þess að vera hræddur. Eða hvað? Ætti ég kannski að brenna þetta, af ótta?
~Brennt barn forðast eldinn~
Slæmt að þau séu horfin. Mörg voru athygisverð og fyllilega réttmæt á köflum.
Vestfirðingur yrði að segja hvers vegna þau eru farinn ef hann kýs.
Ístak ku hafa unnið að því mánuðum saman fyrir fjármálaráðuneytið að grafa í sundur tengingu vestfjarða við norðurland vestra. Landhelgisgæslan er þessa stundina með vestfirði í togi á Dornbanka og er vonast til að straumar og vindar taki til við að fleyta þessum þjóðhagsbagga norður í íshaf til að hefjast megi hagsældarskeið í íslensku þjóðfélagi á ný. Öllum vestfirðingum ku hafa verið smalað á æskuslóðir fyrir brottför. Þetta tel ég að skýri það hvursu lítið heyrist frá slíkum núna.
Kemur hlaupandi inn á sviðið og hrópar
Bíðið eftir mér