Stroh 80 í miklu magni yfir vetrarmánuðina og það er hreinlega eins og veturinn hafi aldrei komið.
Ja Stroh, það er okkur mannfólkinu jafn nauðsinlegt þegar kólna fer og froslögur á bílinn(ekki öfugt)
Eins og hann Ásbjörn mætli hér um árið:
♪Haustið á liti sem málverk hafa ekki
leggjast á sálina, færa þig í hlekki
rakir litir svo dökkir og djúpir
stundum svo harðir, stundum svo mjúkir♪
Hvaða tal um kakó var þetta Skabbi minn, þú ert örugglega með romm í bollanum - er það ekki? Horfir grunsemdaraugum á kakóbollan hans Skabba
Fylgist með því hvernig nýsteiktar kleinurnar hverfa ofaní heiðursborgara Baggalútíu
Örvæntu ekki, kæri Vladimir, þó það sé farið að vetra. Til þess eru nú útlöndin, að maður bregði sér þangað í sólarfrí í skammdeginu á kostnað skattborgaranna. Blaðar kát í ferðabæklingum og dreypir á snarpheitu kakóinu
Kannski við hæfi að minna á eftirfarandi.
Íslenskt vögguljóð
Sumir fóru fyrir jól,
fluttust burt úr landi,
heillum snauðir heims um ból
hús þeir byggja á sandi.
Í útlöndum er ekkert skjól,
Eilífur stormbeljandi.
Halldór Kiljan Laxness
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Á ég að trúa því að þið séuð að sötra kakó án Hexiu??!? Þá er það nú ekki ekta kakó!
hringir í Hexiu og segir henni að drífa sig strax með kakópottinn til að búa til almennilegt kakó handa aðlinum
Hún kemur hingað rétt strax.
Mætir með risastóran mannætupott, setur í hann kíló af Sirius konsúm, bala af mjólk, slatta af leynibragðefnum og hitar yfir eldstæðinu
Afsakið töfina, ég varð að útvega mér leynibragðefnin eftir krókaleiðum. En betra er seint en aldrei, nú fær aðallinn loksins hið ljúffengasta kakó. Má ekki bjóða „smá rjómalufsu með“?
Mikið er haustið og veturinn skemmtilegur tími, Gestapó á fullu, kuldi úti og heitt kakó við tölvuna, gæti ekki verið betra... vertu velkominn Kári minn, megi vindar þínir blása köldu í allan vetur svo við getum kúrað fyrir framan Gestapó og drukkið kakó (og ákavíti)... Skál.
hver vill drekka kakóið mitt, ég skal drekka ákavíti þess sama
Kúrir undir teppi með prjónana, blótandi désvítans Ctrl-takkanum sem festist alltaf niðri
Ætlar enginn að drekka kakóið mitt? kókó?
Ég fæ mér þá bara far með alevrópska miðjarhafsskipinu og safna saman upprunalegum ákavítiskvótaívilnunum sem hafa farið forgörðum á þræði þessum.
Vissir þú ekki að Hexia er komin með einkaleyfi á kakóbruggun hér á Gestapó?