Já nú er mál með vexti að Gestapóar hafa verið að gagnrýna að nafn mitt sé ritað með litlum staf. Hef ég þó heyrt að nokkrir hafa einkaleyfi á að hafa lítinn staf. Hér með bið ég formlega um leyfi fyrir því að rita nafn mitt með litlum staf.
Vil benda á að aulinn er gott og gilt íslenskt sérnafn, ritað með litlum staf. Það eru þúsundir íslendinga sem bera þetta nafn með sóma. Styð þig auli.
Það þarf nauðsynlega að skipa nefnd til að taka á þessu máli. Vjer styðjum að Júlía verði í nefndinni líkt og lagt var til ofar í þræðinum því það er tímasóun að skipa nefnd nema niðurstaða hennar (þ.e. nefndarinnar) sje fyrirfram ljós. Og Júlía er sem kunnugt er á þeirri skoðun að í umræddu tilviki skuli nota stóran staf. Það erum vjer líka og er því ljóst að vjer komum til greina í nefndina ásamt þeim gestum er hjer hafa tjáð sig og eru á sömu skoðun.
Það þarf enga nefnd, nöfn SKULU skrifuð með stórum staf.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þakka þér hARALDUR.
Ekkert að þakka. En jú, nöfn skulu skrifuð með stórum staf. Frá því er ekki veitt undantekning.
Skoðaðu eftirfarandi nöfn;
bauv,
hundinginn,
voff,
hlewagastiR,
feministinn,
albin,
dordingull,
plebbin,
krummo,
krumpa.
Mér sýnist þau öll vera skrifuð með litlum staf, samt eru þetta allt heiðursfélagar.
Hafðu ekki áhyggjur. Haltu bara áfram þínu striki og þínu nafni.
Hér má ekki gleyma að líta á heildarmyndina, því hlutföll og samsvörun orðsins:
aulinn eru með endemum góð.
Ég mun þar af leiðandi veita út frá fagurfræðilegu sjónarmiði, mína blessun á rithátt þessa nafns.
Þú ert aulinn hér og ég er feministi Gestapó, nöfn koma málinu ekki við.
Ég hef í nokkur ár notað lítinn staf í albin, eða frá því ég fór að nýta það nafn. Og hef einnig haft dálæti að hefja skrif á einkavef mínum með litlum staf, en þó bara titill og fyrsta setning.
Í mínum huga ertu og verður alltaf auli með litlum staf.
Í mínum huga ertu og verður alltaf auli með litlum staf.
En sætt.
Ljómar upp