Er þetta bara ímyndun mín eða hverfa allir þræðir þar sem Skabbi finnur upp á að drulla yfir fólk og einhver vogar sér að svara?
Er þetta í anda Baggalúts eða einstaklinga sem telja sig til almættisins? Minnir að þetta hafi ekki verið svona fyrir ca. tveimur árum.
Alvarleg frétt um fisksala í vík þeirri er kennd er við Kefl.
Nú týndi ég alveg þræðinum...
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
tekur upp þráðin þar sem frá var horfið Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Vér erum búsettir þar að staðaldri en höldum til á landi ísa þessa stundina til að fóðra mammon. En í landi Jóta er mitt heimili víst lögskráð síðustu árin.
Ekki svo slæmt að vera þar. Helstu lífsgæði felast í td. Tuborg og Carlsberg ásamt rúgbrauði með hinu ýmsasta áleggi. Stutt er einnig að fara í land Þýzka, það er heimili mullettanna með sítt að aftan. Þar má finna Slots og Harboe frændur Tuborg og Carlsberg næstum ókeypis. Þannig að óhætt er að byrja að hlakka til.
Já, námið í baunalandi togar í mig.
Má spurja hvurt skal halda?
Báðir staðir eru álitlegir til landnáms. Vér búum þó í næsta nágrenni við Árhús. Treystum os varla til tjáskipta við norðurjóska heiða-bændur sem búa borg Ála.
Oiii... mæli með að allir fari til Óðinsvéa. Limbra veitir ekki af félagsskap!
Hvað ertu að fara að læra?