Slíkt heitir kantskurður. Til er kantskeri að nafni Torfi, sennilega uppnefndur Píku-torfi.
Nei Torfi er kallaður loðfíbblið .... eða loðfíllinn minnir mig.
Eigi skyldi taka nokkurn þann mann alvarlega sem eigi skartar glæstum andlitshárvexti, þar með talinn umdeildann konung.
Og þar með talinn þú. Allir vita að þér sprettur ekki grön.
Gefur íkornanum undir nefi órækju hnetu
Hah, þið með ykkar yfirvaraskegg!
Vitið þið ekki að alskegg er inn núna?
Að sjá þetta illgresi framan í ykkur piltar mínir. Hvar er nú Dauðinn? Ég held það dugi ekki minna en ljár á þessa lubba!
Og þar með talinn þú. Allir vita að þér sprettur ekki grön.
Það endar nú í einhverri hringavitleysu ef þú tekur orð mín alvarlega og heldur um leið fram að ekki megi gera það.
Plokkar hnetumylsnu úr skegginu
Ah, en ég var einungis að vísa í þín orð sem falla um sjálfan þig því þú ert sannarlega skegg- (en ekki íkorna) laus. Þú hefur bara átt bágt með að viðurkenna skeggleysið Órækja mín. En það er allt í lagi eins lengi og íkorninn er sáttur.
Tek undir með Miklum að alskegg eru málið, mun betra en hormottur sem minna eingöngu á austur-Evrópu og virðast hafa mikla sækni í gardínuskyrtur og lufsulegar klippingar. Áfram alskegg! Hleypur fram og hrópar hvatningarorð til allra karlmanna að fá sér alskegg, rjóð í kinnum og hýr á brá
Mér sýnist á öllu að hér þjáist alltof margir af langvarandi ofsahræðslu við að fletta skinninu af andlitinu. Þessi hræðsla kemur svo fram í afneitun á notkun rakhnífa sem allir vita að er ein mikilvægasta uppfinning mannskepnunnar.
Sjáið bara menn eins og mig, Vladimir Fukov og háttsettan meðlim Ritstjórnar, Enter. Við erum dæmi um menn sem með styrkri hönd getum brúkað hina beittustu hnífa á andlitið án þess að svo mikið sem losa hina einustu lifandi húðfrumu, hvað þá að blóðga.
Nei, segi ég við ykkur kæru herramenn, sigrist á óttanum og lærið að treysta sjálfum ykkur. Það er svo miklu auðveldara að brosa framan í heiminn ef heimurinn getur séð brosið.
-
Sammála Limbra!
Burt með skeggið!
Ég vil aftur á móti benda á hina yndisfríðu ásjónu Diotallevis og mætti ekki skerða þar eitt einasta hár. Fúlskeggjuð fullkomnun. Dæsir sællega með sjálfri sér og starir á Dio
Seinast þegar ég vissi var Númi í ritstjórn. Óhemjumyndarlegur og viti menn, alskegg! Ljómar upp
Slær Laufið utan undir
Svona!
Snap out of it woman!
Það er bannað að slefa yfir þá opinberlega Glottir eins og fífl
Annars þá vil ég að minn kall sé með skegg. Ég kyssi hann fram og til baka jafnvel þótt hann sé með fínasta skegg.
Mikið hlýtur þinn kall að vera með mjúkt skegg. Annað en vírburstinn hann Ívar... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
PIFF!!! Lappirnar á þér eru eins og grófasta þjöl!
Slær Laufið utan undir
Svona!
Snap out of it woman!
Það er bannað að slefa yfir þá opinberlega Glottir eins og fífl
Meinarðu að það sé í lagi að slefa yfir þá í einrúmi? Stekkur hæð sína Þarf maður að panta tíma eða...?
Hár eða ekki, í mínu ungdæmi óx þetta en nú orðið er þetta allt fari eins og sjá má.
En ég leisti þetta með stærri og glæsilegri gleraugum.
En það er nú einusinni svo að konur elska menn í valda stöðum. og peningar sína svo vel hina innri fegurð. Sjáiði t.d. litla apann hann Berne Eclestone alltaf er hann umkringdur konum.