Er það rétt sem heyrst hefur að Vottar Jehóva hafi náð undirtökum í æðstaráði Baggalútíu og boði nýja þjóðtrú? Ef svo er fær maður bevís eða farseðil í hendurnar til þess efra eða verður maður einfaldlega beam-aður upp á dómsdegi?
Kk. D.F. Andersen
Vottar Jehóva hafa aldrei haft nein áhrif í stjórnsýslu Baggalútíu.
Hins vegar getum við eflaust selt þér einhvers konar syndaaflausn ef þú vilt. Hafðu samband við biskup vorn, Herbjörn Hafralóns. Hann mun eflaust selja þér sáluhjálp dýrum dómum.
Nei ég hugsa að ef til kæmi þá reyni ég bara að vera nálægt einhvurjum sem á slíka syndaaflausn og grípa í lappirnar á honum þegar hann er beam-aður upp.
Veitir Herbert Hafralóns byskup magnafslátt á syndaaflausn?
Maður kaupir ekki Wrigleys ef að í boði er V6. Eða Whirlpool ef í boði er AEG. Eða Dodge ef í boði er BMW.
Maður kaupir ekki Wrigleys ef að í boði er V6. Eða Whirlpool ef í boði er AEG. Eða Dodge ef í boði er BMW.
Ef þú tekur A fram yfir B og þú tekur B fram yfir C, þá tekur þú A fram yfir C. Það er rökrétt valregla til að lifa eftir Doofus minn.
Þannig að ef þú tekur V6 fram yfir Wrigleys og Wrigleys fram yfir BMW. Þá tekur þú að sjálfsögðu V6 fram fyrir BMW. Einfalt er það.
Komið hérna Doofus og Bölverkur og þiggið smá messuvín hjá mér. Síðan getum við rætt um syndaaflausnir.
Kemur og drekkur sig útúr en er vel stilltur.
MAN. Ja, eða man eigi! hver tók sokkana mína?
Komið hérna Doofus og Bölverkur og þiggið smá messuvín hjá mér. Síðan getum við rætt um syndaaflausnir.
Bjóðið þér uppá Reyðvín eða Rósuvín?
Einungis heimalagað rautt messuvín.
MAN. Ja, eða man eigi! hver tók sokkana mína?
Það var alltént ekki ég, en tel ég þó víst að ef þú vilt finna þá aftur geturðu ábyggilega
bara runnið á lyktina.