Geldingurinn göltrast má
gildur dimmar nætur.
Veit ei glöggt hvað gera á
við graðar Evudætur.
Fljúga kvæðin klámfengin
karl og svanna hneyksla.
Geldingurinn göltrast má
gildur dimmar nætur
Galdri hendist heiman þá
hunskast inn og grætur.
Hvernig má það vera vinir
varla nokkuð öl að fá
Hvernig má það vera vinir
varla nokkuð öl að fá
allir mínir sinda synir
sulla í drullu til og frá
Aura mína tel ég til
tek svo á mig rögg
Hér er allt að fara í hnút er best að dúndra botni á þetta allt:
Fljúga kvæðin klámfengin
karl og svanna hneyksla.
skröltir loks í skrá genginn
skinnlykil að heigla...(sbr. heigla –aði. heiglast = lyppast niður, bogna)
úff jæja (hneyk-sla/heig-la. þetta er nú varla tækt.... en jæja)
Hvernig má það vera vinir
varla nokkuð öl að fá
Kútar allir orðnir linir
aðeins hræin má nú sjá.
Aura mína tel ég til
tek svo á mig rögg
geng því bæði get og vil
góða kaupi lögg
Toga síðan tappa úr
Tindavodka gríp
Aura mína tel ég til
tek svo á mig rögg,
gaman er að gríp'í spil
og góða fá sér lögg
Höldum þráðin og þömbum bjór
þegar líður kvöldið á,
Toga síðan tappa úr
tindavodka gríp,
hleip í hasti inn í búr
hraust lega á glasi síp.
Farinn er að finn'á mér
flaskan næstum tóm,
of seinn.
Farinn er að finn'á mér
flaskan næstum tóm,
en síðan finn ég séniver
og sulla í minn góm
svakalega undan svíður
svikinn var ég
svakalega undan svíður
svikinn var ég
Á túrbó hraða tíminn líður
mig tætir allveg
Læðan núna læðist að mér
lymskuleg og hljóð
Læðan núna læðist að mér
lymskuleg og hljóð
einhvernvegin þokar það mér
þangað sem hún stóð
sjálfur er satan kominn
sest og tottar pípu
Sjálfur er satan komin
sest og tottar pípu,
koluð er karls vomin
klæjar hann í snípu.
Þokan svarta byrgir sýn
sjest ei neitt til miða,
Þokan svarta byrgir sýn
sjest ei neitt til miða,
Þarna Grímur greppi trín
grýtti milli liða.
Vikan hálfnuð vel er gætt
veigum að í laumi,
Vikan hálfnuð vel er gætt
veigum að í laumi,
á oss bræður getum bætt
bjór í gleði flaumi.
Í morgun skartaði Esjan snjó
svona í miðjar hlíðar,
Í morgun var fallin í Esjuna fönn,
fjúk oní miðjar hlíðar.
Kominn er Konungur, glottir við tönn
kalt verður nú innan tíðar.
(breytti vegna GNÝstuðlunar en reyndi að halda merkingunni)
Frystir um nætur og næðir um dag
nagar af greinunum holdið.
Frystir um nætur og næðir um dag
nagar af greinunum holdið.
Víst er að kuldinn hann kann á þvi lag
að klípa af steinunum soldið
Fönnin hún kemur Fannars gleðst skap
frjósa senn tjarnir og pollar
Fönnin hún kemur Fannars gleðst skap
frjósa senn tjarnir og pollar
langar í snabba en snoðið er lap
snýst allt um áfengistolla
Kólnar nú sál mín er sumarið fer
sést varla berleggja stúlka
Fönnin hún kemur Fannars gleðst skap
frjósa senn tjarnir og pollar
langar í snabba en snoðið er lap
snýst allt um áfengistolla
Er ekki málið að ríma...........?
Kólnar nú sál mín er sumarið fer
sést varla berleggja stúlka
Tobbi í labbitúr læðist um ber
lastrovía xT þú skalt túlka !!
Hvurs er í Hvannardal
hvosin svo græn
Hvurs er í Hvannardal
hvosin svo græn
Kvenna þar kanna val
kannskji er ein væn
Þar sem lauf í lindi
leika gul og rauð