En segðu mér Mikjáll, er ekki rétt að þú takir líka fram í undirskrift þinni hve mikið þú tekur í bekk? Ég er viss um að margir vilji fá nánari upplýsingar um það.
tpi, er það ekki mælieining fyrir þúsund pixla á fertommu, notað til að meta upplausn mynda í starfrænum myndavélum? Stórt tpi þýðir þá að þú mælir upplausn stafrænna mynda í stórum "tommum", sbr "stórt hundrað" í gamla daga sem var 120 en ekki hið hefðbundna 100 sem við þekkjum.
Já það er eins gott að þú varaðir okkur við!
Það er dpi (dots per inch)
tpi gæti annars verið Þetta enda getur hvaða rugludallur sem er keypt og selt verðbréf. o
Einnig er tpi oft notað um sportlegar bifreiðavélar í fornfálegri kantinun, þýðir Tuned Port Injection
Þannig að rannsóknarniðurstöður mínar eru að Mikjáll ekur um á eldgömlum en kannski sportlegum bíl og reynir að græða á verðbréfum á daginn.
Nei nei, við vitum að þú ert gríðarlegt karlmenni. Verst hvað þú ert andskoti vitlaus og þreytandi.
Jah, mig grunar að þarna sé verið að tala um teppi, eða eins og maður les tpi:
Té-pi.
Af þessu má álykta að upphafsmaður þráðsins sé smámæltur, en það er ekkert til að skammast sín af.
Nei það sem liggur að baki tpi er ekki svona flókið.
Nú, þá er þetta ekki það sem ég hélt. Það er nefninlega ótrúlega flókið fyrirbæri þó það sé vissulega einfalt í notkun.
Svo þú ætlar ekki að segja okkur hvað þú tekur í bekk? Stelpurnar eru að kikna í kinnbeinunum af spenningi.
Sjálfur er ég við að hrasa á hnéskeljarnar af spenningi - en ég held að honum sé alveg sama um hvað mér finnst.
Ég get ómögulega pressað bekk. Nema hann sé úr svamp eða eitthvað þess háttar.
Skv. Wikipediu er tpi úrelt mælieining. Hann er með stóra svoleiðis, ætli hún liggi ekki lausu fyrst hún er úrelt og allir hættir að nota hana.
Ef þú þolir ekki við í hitanum, skaltu standa úti stundarkorn.
Skemmtilega femínísk útgáfa af frægum frasa. Eða er eldhúsútgáfan af þessu ekki upprunaleg?
Hvað veit ég svosem? Óttalega illa lesinn.
-
Ég get ómögulega pressað bekk. Nema hann sé úr svamp eða eitthvað þess háttar.
Æi greyið. Þá er bara að æfa sig meira.
Hvíslar að Hakuchi Ég myndi æfa mig helling.. mér heyrist Júlía vera nokkuð veik fyrir þessum bekkjagaur
Engar áhyggjur, hann er á Listanum, hann verður 'horfinn' innan tíðar.