— GESTAPÓ —
Gagnslaus viska frá A til Ö
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 12, 13, 14  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 18/8/05 16:12

Misheppnuð færeysk pyntingaraðferð sem gekk út á að læsa viðkomandi inn á kamri stöðvarinnar og átti lyktin ein að vera nóg til þess að knýja fram upplýsingar. Hún mistókst oftast því viðkomandi náði yfirleitt að tóra lengur en það tók fyrir næsta Færeying að þurfa að nota kamarinn.

Friðargæsluliði

Kannski, já ...bara
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 18/8/05 16:56

Lufsa sem þorir ekki að skjóta.

Aðalritari.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 18/8/05 20:47

Valdamikill maður (karl eða kona) ef hann kann að (mis)nota aðstöðu sína

Vendilkápa

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rósin 18/8/05 20:50

Yfirhöfn sem hægt er nota bæði á réttunni og röngunni.

Raunveruleikasjónvarp

Rósin er rós er rós er rós. -- Ilmur fagurrar rósar lifir lengi í vitum manns.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 18/8/05 20:54

Óraunverulegt.

Heimavarnaliðið.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 18/8/05 23:24

Heimavarnarliðið er hver sá eða sú sem er heima þegar brugðið er af bæ.

Skilaboð

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 19/8/05 00:41

Þegar maður fær boð um að skila nágrannanum sláttuvélinni.

Jazz

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 19/8/05 09:54

Fullkomnasta tónlistarstefna sögunnar. Hlustandinn upplifir ekki einungis þær hugmyndir sem höfundur lags ætlast til heldur nýtur hann einnig sköpurnargáfu þeirra sem flytja tónlistina.

Graflax

Kannski, já ...bara
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
nirfill 19/8/05 11:16

Látinn og grafinn félagi.

upphlutur

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 19/8/05 16:21

Upphlutur var hannaður af dönskum homma á nítjándu öld (er það ekki?).

Ákavíti

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Krókur 19/8/05 16:52

1) Um er að ræða drykk. Áki Þórsson landnámsmaður er eini maðurinn í mannkynssögunni sem finnst þessi drykkur vondur og hefur því verið kallaður Ákavíti. Annars er hann hrein himneskja fyrir alla aðra.

2) Latína: Aqua Vite sem þýðir vatn lífsins (fyrir alla aðra en aumingja Áka).

Gosbrunnur

Kannski, já ...bara
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 19/8/05 17:08

Lind í jörðu við borgina Atlanta í USA, þar sem kókið er tappað á flöskur.

Matador

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 19/8/05 17:21

Dönsk sjónvarpsþáttaröð sem hlaut verðskuldaðar vinsældir og athygli.

Alþýðuflokkurinn

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 19/8/05 17:32

Einn af endalausum vinstri flokkum fortíðarinnar. Gaf út ágætis skeinipappír á sínum tíma.

Hlíðarendi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vatnar Blauti Vatne 19/8/05 17:35

Staður á Íslandi. Þar féll kappinn Gunnar H. Mundason vegna flærðar ektakvinnu sinnar. Það ólst einnig upp skáldið sem færði sólskríkjuvælið inn í íslenzkan skáldskap.

Vörtueitur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 19/8/05 20:29

Þungarokkhljómsveit frá Svartfjallalandi. Einstök í heiminum fyrir þær sakir að einu hljófærin sem eru notuð eru þríhorn og ástralskar trumbur.

Vasareiknivél

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 19/8/05 20:50

Vasareiknivél er skólaapparat sem er í 99% tilfella ekki geymt í vasa. Með vasareiknivél má hinsvegar reikna út stærð, ummál og rúmmál hverskyns vasa, hvort heldur er skyrtuvasa, jakkavasa eða jafnvel blómavasa. Notkun vasareikivéla utan námstíma takmarkast einna helst við bréfapressu.

Töflur

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 20/8/05 00:12

Slanguryrði yfir slappa inniskó. Einnig notað yfir hin ýmsu kerfi í stærðfræði. Inniskór og stærðfræði er augljóslega sami hluturinn.

Límmiðar.

-

Þorpsbúi -
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 12, 13, 14  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: