samkvæmt snorra-eddu liggur leiðin til heljar norður og niður. hér hefurðu brauðhleif, smjörstykki kóbaltbætt ákavíti. góða ferð og skemmtu þér vel!
Vér leggjum til að... Tuvalu verði bætt á lista yfir óvinaþjóðirnar.
En á ekki að leggja Langtíburtistan undir heimsveldið?Fer að leita að gönguskónum og stóra viskikútnum til að vera vel birgur fyrir ferðina til langtíburtistan
Ég veit að ég er að endurtaka mig hérna en við verðum að fara að huga að yfirtöku Norður og Niðurlanda.
Hyskið á Stökustað hefur nógu lengi vaðið uppi með yfirgangi og ófriði - sendum flokk vígra manna þangað!
Ekki gleyma skrælingjunum í Fjarskafirði, þeir liggja þar á auðugum saltpétursnámum eins og drekar á gulli.
Oss er eigi kunnugt um hvar staðir þessir eru en styðjum þessar tillögur/áform eigi að síður heilshugar. Fram til orrustu !
Setur á sig gullsleginn germanskan hershöfðingja hjálm með horni í miðjunni og rauðri strútsfjöður
Já áfram áfram vaskir menn! Og síðan ráðumst við á Kyrrþey! Hljómar sem rólegheita "pleis" og tilvalin staðsetning fyrir Jógastöð ráðamanna Baggalútíu, fólk verður bara að láta hola sér niður einhverstaðar annarsstaðar. flautar á Klett sem er með hnakk á bakinu og beisli í kjaftinum. Stekkur á bak, rekur gullslegna sporana í nára Kletts af fullmiklum eldmóð þannig að Klettur rekur upp skaðræðisvein en rýkur svo af stað. Til vígstöðvanna!
Er það rétt sem oss sýnist að búið sé að bæta Ítalíu á lista yfir óvinaþjóðir Baggalútíu:
http://www.mirror.co.uk/news/allnews/page.cfm?objectid=13937589&method=full&
eða er hér e.t.v. eitthvað annað að gerast ?
Er það rétt sem oss sýnist að búið sé að bæta Ítalíu á lista yfir óvinaþjóðir Baggalútíu:
http://www.mirror.co.uk/news/allnews/page.cfm?objectid=13937589&method=full&
eða er hér e.t.v. eitthvað annað að gerast ?
Þetta er mér að kenna. Ég faldi allt Kóbaltið sem ég stal úr byrðageymslu Hollendinga í húsgögnum og heimilistækjum íbúa þessa smábæjar.
Það virðist vera að Kóbalt þoli ekki of mikið sólskín.
Ég þoli ekki Kongó. Þeir eru með svo uppáþrengjandi heilbrigðisstefnu. Hvernig sprengjur eigum við í vopnabúrinu? Kallað af áhorfendapöllum
en hvað með kópasker?,Veit að það er ekki heil þjóð en óþolandi afætur sem þarf að útrýmahringir í kanaherinn og spyr hvort ekki sé mögulegt að fá að prófa eina alvopnaða sprengiþotu
en hvað með kópasker?,Veit að það er ekki heil þjóð en óþolandi afætur sem þarf að útrýmahringir í kanaherinn og spyr hvort ekki sé mögulegt að fá að prófa eina alvopnaða sprengiþotu
Já ég er hræddur um að allt norðan Elliðaáa verði að víkja.
ber ég undir háttsvirtan iðnaðarráðherra þá hugmynd mína að norðurland verði notað sem uppistöðulón fyrir virkjanir og hvers konar aðra tengda starfsemi.
En kolbeinsey?það gengur ekki að þessi stórhættulegi þjóðflokkur sem þar býr fái að vera óáreittur
Við ættum að vera Löngu búin að hóta og kúga KÍNVERJA, það er land sem við ráðum við. Ef ´þeir borga okkur ekki ársframleiðslu sína í hrísgrjónum, þá förum við í STRÍÐ !!!
hvað er í gangi!? Kolbeinsey!?
Það er bara allt að verða smekkfullt í Hrísey, við þurfum eða réttar sagt gestir vorir þurfa "lífsrými" og Kolbeinsey er ekki verri staður en hver annar.