Allt í lagi. Hvað hét dvergstirnið sem Kolbeinn Kafteinn stefndi á í tilraun sinni til að fara heim í 'Í Myrkum Mánafjöllum', og hvað hélt Skapti (eða Skafti) að það væri þeðar Vandráður sagði nafnið?
Var það ekki e-ð í sambandi við hippa? Nei annars, það var annað... Hef ekki glóru...
Ef vjer munum rjett hjet smástirnið Adonis en eigi munum vjer hvað Skaftarnir hjeldu um það.
Adonis! Já, þá man ég hitt. Ljómar upp
Hann hélt að Vandráður hefði hitt kunningja sinn.
Úff... Ég er að bisa við að búa til einhverja svínslega bakgrunnspurningu, t.d. eitthvað um hvað Hergé gerði áður en Tinni varð til.
Þangað til er rétturinn laus. sleppir réttinum
Bernskubrek Hergés og fyrirrennari Tinna er skátapilturinn Totor. Þannig hef ég svarað hinni ófullgerðu spurningu!
Ó, Gimlé. Þú ert svo fróð.
Annars er ég með tvær í huga, Tinna og Pikkarónana og Leynivopnið, þar sem þær innihalda báðar stríð.
Ég giska á Pikkarónana vegna þess að mér gengur betur að finna eitthvað sem hugsanlega var breytt, eins t.d. að bókin hafi ekki átt að gerast í S.Ameríku, heldur Evrópu o.s.frv.
Hmm... Hvað gæti verið bannað vegna stríðsins?
Hugsanlega Tinni í Ameríku vegna þess að þar var sumstaðar gert frekar lítið úr t.d. bandarískum lögregluþjónum. Það passar samt varla þar sem það er bara ein bók á undan henni.
Ef ekki, fer ég í fýlu.
Thad held ég sé varla "Tinni í Ameríku". Er hún ekki medal fyrstu thriggja bókanna?
Jú, hún er númer 2. Samt sú eina sem mér dettur í hug.
Og auk þess er hún eiginlega beint framhald af Tinna í Kongó, svo hún kemur ekki til greina.
Ég myndi gizka á Fjársjód Rögnvaldar.
Bara......... skjóta
GiImlé! Farðu nú að asnast til að svara!
Annars skýt ég á Eldflaugastöðina, staðsetningu stöðvarinnar breytt... Starir þegjandi út í loftið
Þetta var Svarta gullið og það var eitthvað varðandi Palestínu og gyðinga í fyrstu útgáfunni sem var síðan tekið út þar sem það þótti of eldfimt efni pólitískt séð.
Hvað söng í Kolbeinn í Í myrkum mánafjöllum í óleyfilegri geimgöngu er hann var rétt búinn að dragast að loftsteininum eftir að hann drakk viskíið sem hann smyglaði um borð.