Flengdur drengur flúinn er
flæmingunum undan.
Illa farinn, bossinn ber
brókinni á þeir fundan'.
Komið er sumar með sól,
senn vakna rónar til lífsins.
Komið er sumar með sól,
senn vakna rónar til lífsins.
Svolgra nú svalt alkóhól,
svangir og hugsa til þýfsins.
Mikið var að beljan bar,
bíða þurftum lengi.
(Komið nú með eitthvað fyndið...ég veit þið getið það...)
Mikið var að beljan bar,
bíða þurftum lengi.
Ljóst við settum kjöt í kar
kjammsaði mitt gengi
Þennan fima fyrripart
fyndni skal með botna
Þennan fima fyrripart
fyndni skal með botna
Þeir sem yrkja ekki smart
eflaust neðra rotna.
Ekkert get ég, ekkert skil,
ekkert lengur megna
Ekkert get ég, ekkert skil,
ekkert lengur megna.
Ef ég stöku yrkja vil
orðin sjaldan gegna.
Reykelsið er rammt og gamalt
reykur gefur enga lykt.
Reykelsið er rammt og gamalt
reykur gefur enga lykt.
þetta er auðvitað alveg banalt
alltaf hélt það væri tryggt. (gengur það ekki annars?) [jú jú... Skabbi]
Stækjan hér er fjandi fúl
ferleg mjög og svíður nös.
(Aldrei heyrt orðið "banalt" áður...)
Stækjan hér er fjandi fúl
ferleg mjög og svíður nös.
Sterk er brælan, stanslaust púl,
stór af bjór ég svolgra glös. (Virkar þetta aftur á móti?)[jú jú... Skabbi]
Górillur í Gíneu
gaman er að skoða.
Í er fjör í Frakkabyggð
frasnsósinn í blóma,
kerlur kumra enn af fryggð
körlunum til sóna.
Bráðum kemur sumar blíða
berar dömur gang' umm torg
[obbobbobb... lega stuðla ekki til fyrirmyndar í botni og fyrriparti ... Skabbi]
Bráðum kemur sumarblíða
berar dömur gang' um torg.
Gyðjur þokka um götur líða
gleðja menn um alla borg.
Lá í garði léttklædd kona
ljúft mér fannst að horfa á.
Lá í garði léttklædd kona
ljúft mér fannst að horfa á.
Drottning minna drauma, vona
druslan undir Torfa lá.
Vel mun Torfi vaxinn niður
víð er líka drottning mín.
Vel mun Torfi vaxinn niður
víð er líka drottning mín.
Prýði hans þótt hylji fiður
hefur'ann unnið verkin sín.
Sýnist mér að nóg í nótt
nú sé komið vísum af.
P.S. Er þetta ekki Píku-Torfi með skapalónið?
Sýnist mér að nóg í nótt
nú sé komið vísum af.
hugsun var þar furðu frjótt
fer ég nú í vísnakaf
Flakka menn á fílum enn
í frumskógum Indlands
Flakka menn á fílum enn
í frumskógum Indlands
Kjaftagleiðir klambra menn
í kjarnorku eldbrands
Indverjarnir eru með
eyðsluhnappinn rauða
Indverjarnir eru með
eyðsluhnappinn rauða
Getum í margmenni sjeð
milljónir sauða
Skrumgleypirinn aldrei aftur
innipúka gleypir
[obbobbobb... hrynjandi eitthvað skrítinn og stuðlasetning í botni... betra væri: Getum marg-í-menni sjeð... Skabbi]
Skrumgleypirinn aldrei aftur
innipúka gleypir
Fann þó leið út fylliraftur
fagran vökv'á dreypir
Ákavíti valt um gat
vitin fylltu ilmur
Ákavíti valt um gat
vitin fylltu ilmur.
tápmikið og taumlaust at,
tekið upp á filmur.
Þegar sólin sendir yl
sæll ég fer og kaupi ís.
Þegar sólin sendir yl
sæll ég fer og kaupi ís,
karamellur, kerti spil,
kóníak og Freyju rís.
Allt er gott sem endar vel,
einnig þessi staka.
Allt er gott sem endar vel,
einnig þessi staka.
Ég fer út og veiði sel,
af nægu er að taka.
Kalt er úti,
sumar samt.