Jæja Gimlé þú sleppur, vegna þess hve smáa letrið fer illa með augun.
Ég rak augun í það að Þorsteinn er titlaður fyrir þýðingunni með Lofti í nýju útgáfunni af Fjársjóði Rögnvaldar rauða, í það minnsta. Held hann hafi ekki verið það í gömlu útgáfunum.
Voru þeir ekki í bókinni Sjö Kraftmiklar Kristalskúlur, og þeir settu hatt vandráðs yfir stein svo Kolbeinn féll. Hatturinn kom þeim svo á spor inkanna.
Í hvernig múnderingum voru Skaftarnir þegar þeir komu á eldflaugastöðina í Syldaviu og hverjir héldu öryggisverðirnir að þeir væru?
Það var þjóðbúningur, en ekki hinn Syldavííski, heldur einhver annar (man ekki hver, man að það voru einhver pils, e.t.v. sá skoski). Verðirnir héldur að þeir væru ...pff... að fara á kjötkveðjuhátíð.
Mig minnir að þeir hafi verið í grískum þjóðbúningum og verðirnir hafi einmitt grunað þá um að vera njósnarar.
Þeir héldu já, að þetta væri njósnararnir sem höfðu varpað sér í fallhlíf úr flugvélinni um nóttina.
En þetta var rétt hjá þér Sundlaugur. Þú átt leik.
Ljómar upp
Í hvaða bók verður Tobbi vel drukkinn í lestarferð og hvaða áfengistegund drekkur hann (s.s. hverskonar áfengi og hvaða tegund)?
Er gauró ekki orðið sem sígaunarnir í Vandræði ungfrú Vaílu Veinólínó notuðu um annað fólk en sígauna (og í þessu tilviki þá um Tinna og Kolbein) ?
Þetta er í Svaðilför í Surtsey. Hann drakk að sjálfsögðu skozka viskíið Loch Lomond. Þetta er fyrir tíma Kolbeins kapteins, en hann átti síðar eftir að reynast unnandi sömu tegundar.
Vegna þess að ég er næsta viss um að hafa svarað rétt spyr ég: Hvað er„ gauró?“
(Og sé svar mitt ekki rétt bíður spuringin betri tíma)
Hárrétt, Gimlé.
Gáðið að því að Loch Lomond er nokkuð stór "eimingarstöð" en framleiðslan er sárasjaldséð á flösku. Hún fer svo gott sem öll til blöndunar (blended whisky).
Ég tek undir skýringar Fucovs á orðinu "gauró".
Hvaða fyrirbæri veltu Skaftarnir eitt sinn fyrir sjer hvort ætti eitthvað skylt við píanó og í hvaða Tinnabók gerðist það ?
Var það nokkuð vöruflutningakassi einhvers konar?
Nei, það sem um ræðir er eigi líkt píanói hvað útlit, lögun, stærð eða notkun snertir.
Hvaða fyrirbæri veltu Skaftarnir eitt sinn fyrir sjer hvort ætti eitthvað skylt við píanó og í hvaða Tinnabók gerðist það ?
Það er auðvitrað gúanó sem vafðist fyrir Sköp/ftunum á þennan hátt. Ég man ekki nákvæmlega hvaða bók... Byrjar að fletta Tinnabókunum í gríð og erg
Gúanó og Fangarnir í Sólhofinu er rjett og á Kókoshenta því spurnarrjettinn.