Vonandi erum vjer nægilega snemma á ferðinni með þennan þráð núna því áður er vjer höfum stofnað svipaða þræði við svipaðar aðstæður hefur afar skammur tími verið til stefnu.
Þannig er mál með vexti að tímavjel vor virkar eigi nægjanlega vel til að vjer getum athugað hvernig árshátíðin muni heppnast (eða notað tímavjelina til að fara á árshátíðina ef í ljós kemur að hún heppnast vel og svo illa færi að vjer kæmumst eigi).
Oss vantar því annað hvort vel með farna tímavjel er virkar almennilega eða þá hluti/efni á borð við 'exotic matter', þungt vatn, plútóníum, margfalt meira rafmagn en framleitt er í Baggalútíu (áður Íslandi) auk (ef við á) handbóka. Gestir er hugsanlega geta hjálpað til á þessu sviði eru hjer með formlega beðnir um að gefa sig fram og gefa nauðsynlegar upplýsingar án þess þó að stofna þjóðaröryggi baggalútíska heimsveldisins í hættu.
PS Tímavjelar kunna einnig að nýtast í baráttunni við skrumgleypinn illræmda.
Ég hef heyrt því fleygt að tachyon hafi eitthvað með þetta að gera, sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Þungt vatn get ég hugsanlega útvegað, en til þess verð ég að "afgreiða" einn viðskiptavin snarlega.
Safnar vatninu neðst úr Atlantshafinu í poka Þungt vatn gjörsovel
Fer út í garð og grefur upp plútóníum stangirnar sem hann gróf þar fyrir löngu. Gjörðu svo vel Vladimir. Njóttu vel!