Nei, umrætt ríki var alltaf óvinaríki en ekki bara stundum eins og San Theódóros.
Líklegast Bordúría þá... Æj, Tinnafræðin eru alveg horfin úr kolli mínum. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Var það nokkuð í Flugrásinni? Nei annars þar var bara einn glæpon... Ég veðja því á leynivopnið án þess að muna hvað var að gerast.
Leynivopnið er rjett og hjer er viðbótarvísbending: Um er að ræða símtal til Szóhód.
Pff... Þetta er heldur smásmugulegt.
Þetta er annaðhvort Kolbeinn eða, sem ég tel líklegra, einhver af vondu köllunum“ að hringja til annars „vonds kalls“. Hvers vegna man ég ekki.
skýtur út í loftið Bara tilkynna komu Tinna til Szóhód eða e-ð.
skýtur út í loftið Bara tilkynna komu Tinna til Szóhód eða e-ð.
Þetta er nægilega nálægt rjettu svari og á Jeg Sjálfur því spurnarrjettinn.
fagnar Ég er samt nokkuð þurrausinn. Kannski finn ég eitthvað til að spurja, þangað til er rétturinn laus.
Bara til að halda leiknum gangandi kem ég með eina. Í hvaða bók var vasaþjófnaður mikið mál, og hvað hét svo vasaþjófurinn?
Þetta var í bókinni um fjársjóð Rögnvaldar rauða og vasaþjófurinn að var eftirlaunaþegi sem var haldinn söfnunaráráttu. Ég man ómögulega hvað karlinn hét en nafnið hlýtur að hafa komið fram.
Ekki rétt bók. Og já, nafnið kom fram í lok bókarinnar.
Þetta var bókin á undan Fjársjóði Rögnvaldar rauða, Tinni og Einhyrningurinn. Man samt ekki nafn þjófsins.
Nei, ég man það núna að bókin hét Leyndardómur Einhyrningsins. Einhyrningurinn var skip. Ég man ómögulega hvað þjófurinn hét.
Jájá, leyndardómar e-ð, jájájá...
Starir þegjandi út í loftið Leyndardómur Einhyringsins - Arkibaldur Argvís Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hverjir þýddu Leynivopnið yfir á íslensku?
og...