Vér játum þá staðreynd að vér erum gjörsamlega "húkt" á þessum vettvangi og ekki nokkur leið að vér getum slitið oss frá því frábæra fólki sem hér ritar og rífur kjaft daglega. Eina leiðin til að vér losnum tímabundið frá þessu er að fara í óbyggðir á öræfum Íslands þar sem eigi mun netsamband vera.
Hæ, ég heiti Litla Laufblaðið og ég er gestapófíkill.
Halló. Ég er kokkurinn á gestapó og finn að fíknin er að minnka verulega. Hvort að það er aldurinn eða að sumarið er að koma veit ég ekki en ég finn að það er að koma að endalokunum.
Halló Galdrameistari! Ég heiti Bersekur og er líka fíkill. Fíknin er þó að dofna og ég trúi að á endanum geti ég aftur orðið heilbrygður. Viltu vera sponsorinn minn?
Halló ég heiti Sæmi og er fíkill, á mettíma hef ég orðið hræðilega háður gestapó. En ég hef heyrt að það sé gott og því er ég glaður Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég var einstaklega ánetjaður en nú er ég alveg laus við fíknina...svona nánast sko. Nú droppar maður við svona af og til.
Berserkur. Ég er svo ánetjaður að ég mundi bara gera þig að fíkli aftur.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég er alvarlega ánetjuð.
Komst upp í 1000 innlegg á 10 dögum.
Aðeins einn dag fór ég ekki á Gestapó, enda var ég að skemmta mér með drukknu fólki í Borgarfirði og klára maltið á Skessubrunni.
Hæ, ég heiti Smábaggi og ég er Baggalútsfíkill.
Salurinn kallar á móti „hæ!“
Í gær tókst mér að vera í heilan dag án Gestapó.
Salurinn klappar
Var það ekki vont?
Jú, en það var nú líka bara út af helvítis andskotans internetbiluninni.
Hverjum er um að kenna?
Einhverju möppudýri hjá Símanum sem hellti appelsínudjúsi yfir sendinn. Það er búið að refsa honum.
Ég legg til að þeir fái a.m.k. 3 mínuspunkta sem senda Pistling sem ekki er meira ein sex eða sjö línur og þar af leiðandi aðeins ein kleines Pistlingchen, eða Pistelein eins ig sagt er í Niedersachsen.
Ég er Gestapófíkill... einungis skrumgleypandi svartholsklósett hefur getað haldið mig frá Gestapó...
Hvar eru allir þessir fíklar í dag, ég bara spyr?