Eigi er það hún, en þú ert töluvert nær myndinni en hann Magnús hvað tíma varðar. Myndin er samt eilítið eldri, bara eilítið.
Nei, Omen er yngri en Barn Rósmaríu. Myndin er svathvít. Einnig er gaman að minnast á það að einn leikari myndarinnar heitir einmitt Gaman, Tom Gaman.
"Gleymdu því sem þú heldur að þú vitir"
Og það var rétt. Magnús á leik. GO Magnús!
Þettu mun vera Ali, ekki satt?
Hver fjárinn, það eru ekki margar teiklínur sem ég man en þú eyðilagðir þessa fyrir mér.
Það er svona, maður man þessar fleygu o.s.frv. Hérna kemur ein snúin:
„Búðu þig undir bestu keppni allra tíma“ Verður þetta mitt síðasta innlegg áður en ég leggst til hvílu í nótt. Takk fyrir leikinn undanfarnar mínútur Herr Magnús og Hakuchi-san.
Hvorug þessara mynd er rétt. Þær eiga fátt ef eitthvað sameiginlegt með umspurðri mynd. Myndin er frá síðustu öld.
Ætlar enginn að giska?
Nei. Myndin er frá ári mjög nálægt síðustu aldamótum, mjög nálægt.
Hvað er þetta? Dettur engum neitt í hug?
Jú ... The Fast and the Furious?