Kenny Rogers og Fyrsta útgáfan.
Aldrei hefði mér dottið í hug að Kenny Rogers gæti gert annað en óáhlustanlegt kántríflöff. En nei! Kántrískotið popprokkið með Fyrstu útgáfunni er dúndrandi gott. Frægast er líklega lagið I just dropped in (to see what my condition was in), sem var áberandi í meistaraverkinu The Big Lebowski.
Ólafur Thor var auðvitað ræðusnillingur hinn mesti. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Silfurskotturnar sungu fyrir miiiiiiig - Millilending Megas(t)ar.
Drake - Beth Gibbons og Ryðgaurinn
Ol' 55 - Tómas Bíður.
Ég er að hlusta á Goo Goo Dolls -Iris
Köngulóaapi Betu Gibbóns og ryðgaursins.
Næst er Pollýanna Harvey með hinum lateygða Tómasi.
Ja, konungurinn má þó eiga það, hann er með sæmilegasta smekk fyrir tónlist. Tekur ofan
Eitthvað hresst og skemmtilegt og eitthvað sem er að mestru leyti taktvisst, helst með Tenacious D
Hnerra og hóstakjöltur samstarfsmanns míns. Þessar veiklulegu hryglur og biðjandi augnaráð eiga líklega að fá mig til að vorkenna honum og loka glugganum.
Glætan, spætan, segi ég nú bara. Mér er ágætlega hlýtt.
Eitthvað held ég að Rocky Horror Picture Show 'soundtrackið' sé málið.
Tónlistin í gömlum Disneyteiknimyndum (Mikki mús, Andrés Önd og svo framvegis) er það eina sem ómar á mínu heimili þessa stundina, fyrir utan auðvitað lætin í mér þegar fingur mínir þeysast um lyklaborðið.
Ég er að hlusta á hljómverkið Fall on Rockets Fall með Godspeed you Black Emperor.
Þvílík fegurð. Nútímahliðstæða sinfónúverka gamla tímans (þ.e. áður en módernisminn eyðilagði sígilda tónlist).
Svo er þetta einhver flottasti titill á hljómsveit sem um getur: Godspeed you Black Emperor. Ógurlega kúl.