Ég man eftir DC-8 þotum Flugleiða.
Ég man eftir Kötlu Maríu.
Ég man eftir Arnarflugi
Ég man eftir Rokklingunum Hryllir sig
Ég man eftir Miklagarði.
Ég man eftir Kjörgarði
Verlzuninni Nýja bæ og svo Litla bæ á Eiðistorgi.
Ég man eftir Miklagarði í Mjódd
Ég man eftir verzluninni Allt og bókaverzluninni Emblu í fellunum
Ég man eftir páskaeggjunum með þykka botninum og hvernig þau voru límd saman með súkkulaði.
Ljómar upp og fær vatn í munninn
Ég man eftir Tokyo búðinni í Hafnarstræti.
!!! nú man ég eftir litlu bauv-kvikindunum sem fengust þar og allar stelpur voru með í bunkum. Man reyndar ekki hvað þau hétu.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Monsur. Það hétu Monsur, eða Mon-Chi-chi. Saknar Monsanna sinna gríðarlega og man þegar litlasystir sveið hárið af kollinum á uppáhaldsmonsunni og var næstum búin að kveikja í húsinu
Oh já!
Ég man eftir þegar Tappi Tíkarrass söng í sjónvarpinu, hvort það var ekki í Stundinni okkar, ég átti ekki orð yfir nafngiftinni.
Monsur. Það hétu Monsur, eða Mon-Chi-chi. Saknar Monsanna sinna gríðarlega og man þegar litlasystir sveið hárið af kollinum á uppáhaldsmonsunni og var næstum búin að kveikja í húsinu
Þarer hægt að kaupa Monsur í Leikbæ, venjulegar, pínulitlar, og RISAstórar. Ég er að endurnýja safnið mitt. Brosir Sólheimabrosi og knúsar monsurnar sínar
Ég man eftir Corega töflunum og Corega tannlíminu...