— GESTAPÓ —
Golfvöllur Baggalútíu
» Gestapó   » Baggalútía
        1, 2, 3 ... 7, 8, 9 ... 20, 21, 22  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 22/1/05 02:25

‹Kveikir á kveikjaranum til að fá unplugged stemmningu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 22/1/05 02:29

‹Kveikir í B.Ewing til að fá varðeldastemningu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 22/1/05 02:37

‹Hleypur í burtu frá Steinríki í ljósum logum. Finnur kælibox og hellir því yfir sig en hlutfall vatns og ákavítis hefur greinilega riðlast enda gýs upp mikið bál› ‹Æðir fyrir tilviljun út í golfvallartjörnina að lokum›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 22/1/05 03:16

‹Ranglar inn á svæðið í hippamussu og útvíðum buxum með fjöldann allann af perlufestum og skeljum um hálsinn, kringlótt sólgleraugu á nefinu og berfætt›
Hvar er þessi úthátíð sem var verið að auglýsa? Er allt búið? er ekkert stuð?
‹Vefur sér feita jónu og kveikir í›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 22/1/05 03:20

‹Skríður uppúr tjörninni og til nornarinnar› ahh.. Mettallica er föst undir uppblásna sviðinu hennar Hexíu, Ívar átti að vera með næsta númer en drapst einhversstaðar á leiðinni. Aðrir eru ýmist steinrunnir af óhóflegri drykkju eða að gamna sér í tjöldunum ‹svipast um eftir kæliboxunum›Semsagt, alveg rosalegt partý!‹Leggst útaf›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 22/1/05 03:31

‹Tekur af sér sólgleraugun og horfir á B.Ewing stórum, skökkum augum›
Vá... þú meinar... eigum við að reyna að bjarga þeim þarna Metallica gaurum? Langar alveg að heyra þá spila eitthvað... eða eigum við að næla okkur í kassagítar og taka smá órafmagnað saman???

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 22/1/05 04:05

‹Þar sem B.Ewing hefur greinilega lognast út af í síðasta sinn í nótt, grípur Nornin næsta kassagítar og slær þá fáu hljóma sem hún kann. Ekki hljóma þeir vel og hún kann ekkert að stilla gítar og í stað þess að vera aðgerðarlaus þá gengur hún að uppblásna sviðinu og danglar aðeins í það með gítarnum. Lágvært uml heyrist undan plast flykkinu og heyrist henni það vera í Lars Ulrich. Hún reynir að draga Lassa undan sviðinu en hann er frekar þungur svona hálf meðvitundarlaus og hún er líka frekar aum svona skökk. Hættir snarlega við og lemur aðeins í hann með gítarnum. Ekkert meira heyrist frá Lassa. Hún gefst upp á þessari samkomu og fer að leita að tjaldi sem er með svefnplássi. Finnur eitt og hreiðrar um sig í tómum svefnpoka›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
kolfinnur Kvaran 22/1/05 08:52

Ræs.. morgundagsskráin er að byrja.. ‹blæs stoltur í lúðurinn sinn›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 22/1/05 11:20

Heyrðu vinur, þú brást! Þú sagðir 8.30! Láttu þetta ekki koma fyrir aftur ‹fer upp á svið að róta til og bæta við í loftið í sviðinu› FYLGIST MEÐ Í NÓTT ÞEGAR ÍVAR & THE SÍVERTSENS STÍGA Á SVIÐ!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 22/1/05 12:56

‹Hoppar inn með tjald›
BRING IT ON!

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 22/1/05 13:28

‹Slær í höfuðið á leðurdvergi með golfkylfu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Montessori 22/1/05 15:12

Drottinn blessi Nevada Bob!‹Smeygir sér í ljósdrapplitar síðbuxur og sitrónugulan langermabol með hnepptum kraga. Finnur á botni survæval kittsins forláta golfskó úr krókódílaskinni í stærð 47.›‹Ljómar upp›Má bjóða ykkur að þefa?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/1/05 15:23

‹hangir inn í tjaldi spilandi á gítar og sötrandi Ákavíti›... ansans hávaði er þetta hérna fyrir utan

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 22/1/05 15:42

‹Skipar statistunum að þrífa útikamrana og reyna að flikka aðeins upp á pleisið. Dregur síðan Metallica menn undan sviðinu og skellir þeim inn í 5 stjörnu fellihýsi› Sona angakallarnir mínir, þið jafnið ykkur þarna þangað til í kvöld. ‹Krotar eitthvað í þvælda stílabók› Ætli það sé ekki best að þið hitið bara upp fyrir Ivar and the Sivertsens í kvöld?

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Montessori 22/1/05 16:01

Golfvellingar! Varðandi kveldið á að panta aðra flatböku eða á ég að græja grillið?‹Telur CharBroil kolin sem pakkað var inn í álþynnu.›Við lifum nú ekki lengi á vínanda og amerísku jórturleðri einu saman.‹Opnar einn ííískaldan Faxe›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 22/1/05 16:06

Jú elsku Montessori, það væri sko alveg frábært að fá grillmat!

‹Fer og reddar nautainnralæri til að setja á grillið›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 22/1/05 17:07

‹Rænir kjötinu áður en það fer á grillið›

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 22/1/05 17:55

‹Rankar skyndilega úr rotinu› Er kominn dagur? ‹Við sjálfan sig›neinei það er ennþá dimmt...‹kafar með höndina í löngu volgnað klakakæliboxið, aftur við sjálfan sig› ekkert kalt lengur?? ‹Finnur týnda ákavíti á botninum, opnar og svolgrar í sig. Sér Tígru með grillkjötið og snarar frá henni vænni sneið og byrjar strax að naga sneiðina í sundur›

        1, 2, 3 ... 7, 8, 9 ... 20, 21, 22  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: