Nei, auðvitað ekki. En það verður engu að síður gaman að líta hann augum, og það munum við geta gert innan tíðar.
Brosir breitt í gegnum skeggið
Á erfitt með svefn sökum spennings
Rænir kóbalti frá aðilinumFélagi Afturhaldskommatittur hér er með 33 tonn af últra kóbalt,ég vona að þú hafir eitthvað gagn við það í rannsókn þinni!Fer að mala
Stendur upp
Félagi aðalritari, það er mér gleðiefni að tilkynna það að þarfagreiningarfasanum er lokið. Hér er niðurstaðan úr ferlinu:
Gereyðingarvopnið þarf að geta:
1) Tekið ósóma, óhróður og annað ógeðfellt efni af djöfullegum síðum á borð við síðuna sem byrjar á h.
2) Afritað umrætt soraefni.
3) Sett slíkt efni inn á Gestapó í formi innleggja.
Arrrg, nei það væri brjálæði!
Og ég ÞEKKI brjálæði - ég er brjálaður vísindamaður! (trivia?)
Svo held ég að við ættum að fara varlega í aðgerðir af þessu tagi því mig grunar að óvinurinn búi yfir óbermi sem þeir gætu kosið að særa upp ef þeir yrðu fyrir svona fólskulegri árás.
felur sig bak við gardínurnar
Þetta væri sannarlega brjálæði, en brjálaðir tímar kalla á brjálaðar aðgerðir. Persónulega finnst mér þessi hugmynd eiginlega einum of ill, en við skulum sjá til.
Mylur kóbalt útí hitaveituvatn
Til hvers að þróa gereyðingarvopn ef það má ekkert fitla með þau? Eins og félagi Stalín gerði á sjötta áratugnum, sagði einhverjum kotbændum í Síberíu að nú ætlaði félagi Stalín að kveikja á nýrri sól fyrir þá, sem og gerðist í kjölfarið með tilraun á vetnissprengju. Held að fáir hafi gripið kjarna gríns betur en fréttatilkynningin frá perestrókjunni eftir atburðinn: "damn n00bs.. LOL".
Já, og mun þetta hafa verið í fyrsta sinn sem svokallað leetspeek var notað í rituðu máli, en það er dregið af rússnenska orðinu letspak, sem ku þýða 'Tungumál guðanna'
En hvað sem því líður, þá er ljóst að hér þarf að gæta varúðar. Mæli ég með því að hóflega verði farið í sakirnar, því að annars eigum við öll á hættu að glatast að eilífu.
Ég tel að árásir af þessu tagi sé allt of fólskulegar þótt hugsanlega megi nota þær í neyðartilfellum. En hvaða sjálfboðaliða ætti að senda á „huga“.. Hryllir sig ..til að ná í gereyðingarvopnið?
Vér vekjum hér með formlega athygli á því að Kommúnistaflokkurinn er velkominn hingað:
Er einn þráður ekki nóg fyrir svona lagað, bastarðarnir ykkar?
Hinn stafræni hermaður mun arka ótrauður inn á hxxxslóðir. Hann er fórnfús mjög. En hvaða þráð ertu að tala um þarna, Vlad?
Best að kíkja ...
Ég tel að árásir af þessu tagi sé allt of fólskulegar þótt hugsanlega megi nota þær í neyðartilfellum. En hvaða sjálfboðaliða ætti að senda á „huga“.. Hryllir sig ..til að ná í gereyðingarvopnið?
S.kv. helstu vísindamönnum hins græna arms Kommúnistaflokks Baggalútíu, er hinn „Stafræni hermaður“ alsjálfvirkt vítistól, sem að gerir hann töluvert skæðari en fyrstu tilraunir með kóbaltstjúnaðar smásálir á sólarhringsvöktum. Sem sagt félagi Smábaggi, gereyðingarvopnið er „Stafræni hermaðurinn“, misvitrænt skrivelse á netinu er kanónufóðrið, ekki öfugt.
Sýpur á vodka og býður félaga Smábagga með
Þiggur vodkað og skálar við Kuggz
Takk, félagi! Nú mega auðvaldssinnarnir fara að vara sig.
Já, skál fyrir hinum stafræna hermanni!
Lyftir vodkapela
Flissar bak við gardínurnar.
Þerrir svitann með lófafylli af seðlum