Villist inn Mér leiðist pólitík áttar sig á að þetta hljómar eins og fýlustrumpur hrökklast aftur út.
Lallar inn annars hugar, muldrandi um tög, fylki og lista
Já ... sælir, félagar.
Gengur inn í gerfi snyrtitæknis og plantar hljóðnemum hér og þar um fundarherbergið
Yppir öxlum á eftir Hexiu og lítur yfir hópinn sem eftir er. Ræskir sig
Jæja, fyrsta mál og eina mál á dagskrá er gjöreyðingarvopnið. Félagi þarfagreinir, er þarfagreiningu á þörfum þeim sem þarf að uppfylla lokið?
Hlýðir á orð foringjans
Stendur upp
Félagi aðalritari, það er mér gleðiefni að tilkynna það að þarfagreiningarfasanum er lokið. Hér er niðurstaðan úr ferlinu:
Gereyðingarvopnið þarf að geta:
1) Tekið ósóma, óhróður og annað ógeðfellt efni af djöfullegum síðum á borð við síðuna sem byrjar á h.
2) Afritað umrætt soraefni.
3) Sett slíkt efni inn á Gestapó í formi innleggja.
læðir sér ofurhljótt út úr herberginu aftur og sest í uppgræjaða jeppann sinn
Legg ég til að vér ræðum betur þær kröfur sem félagi Afturhaldskommatittur setti fram, eftir tilkynningu um tilvist hins „Stafræna hermanns“. Nú hlýtur rauða birtan að lýsa veg Flokksins til algjörra valda yfir Baggalútíu. Er það mín ósk, að félagi Afturhaldskommatittur skýri sína framtíðarsýn fyrir okkur sem að hafa verið á vígvellinum og fjarri stjórnskipulagsferli Flokksins.
Skálar
Skálar og kinnkar kolli
Krafa þín er réttmæt, félagi mannauðstæknir. Ég vil í fyrsta lagi vísa í nýjasta félagsrit mitt, þar sem ég útlista sýn mína á gjöreyðingarvopnið mikilfenglega.
Þarfagreiningin sem félagi þarfagreinir hefur gert er einnig góður byrjunarpunktur. Hinn stafræni hermaður verður hið ægilegasta vopn sem mannkynið hefur nokkurn tímann séð.
Félagi mannauðstæknir, hvað hefur hinn græni armur flokksins að segja um þetta vopn? Er þetta mögulegt út frá tæknilegum og siðferðilegum forsendum?
Stendur upp
Félagi aðalritari, það er mér gleðiefni að tilkynna það að þarfagreiningarfasanum er lokið. Hér er niðurstaðan úr ferlinu:
Gereyðingarvopnið þarf að geta:
1) Tekið ósóma, óhróður og annað ógeðfellt efni af djöfullegum síðum á borð við síðuna sem byrjar á h.
2) Afritað umrætt soraefni.
3) Sett slíkt efni inn á Gestapó í formi innleggja.
Svo virðist oss, sem að samskiptaflæði innan flokksins sé að upp og ofan að íslenskum sið. Því á vígvöllin bárust þær fréttir að hinn „Stafræni Hermaður“ væri þegar tilbúinn til að þjóna Flokknum. Hér sný ég tilbaka og mætir mér þarfagreining... stend ég ráðþrota gegn slíku og leita á náðir hins alvitra Félaga Afturhaldskommatitt, voru fregnir mínar rangar... eða er þetta til að slá ryki í augun á elítunni?
Hér þarf að árétta, það er ljóst. Í riti mínu var ég að lýsa því yfir að hönnun og þarfagreiningu væri senn lokið, en ekki útfærslunni. Það er því umræða þessa fundar. Vil ég því fá álit faglegt álit þitt á þessu vopni hér og nú.
Skálar og kinnkar kolli
Krafa þín er réttmæt, félagi mannauðstæknir. Ég vil í fyrsta lagi vísa í nýjasta félagsrit mitt, þar sem ég útlista sýn mína á gjöreyðingarvopnið mikilfenglega.
Þarfagreiningin sem félagi þarfagreinir hefur gert er einnig góður byrjunarpunktur. Hinn stafræni hermaður verður hið ægilegasta vopn sem mannkynið hefur nokkurn tímann séð.
Félagi mannauðstæknir, hvað hefur hinn græni armur flokksins að segja um þetta vopn? Er þetta mögulegt út frá tæknilegum og siðferðilegum forsendum?
Heilsar félaga Afturhaldskommatitt að hermannasið
Hinn græni armur flokksins fagnar fyrst þeirri stefnu að hafa tekið upp vopn gegn þeim sem hafa lagt sitt allt gegn Flokknum.
Fær sér vatnsglas og hóstar
Sem yfirmaður nýsköpunardeildar hins græna arms Kommúnistaflokksins, get eftir margskonar rannsóknir og prófanir staðfest grunnvirkni „Stafræna Hermannsins“. Þarfagreiningin er verðug frá félaga Þarfagreinir og verðu höfð til hliðsjónar við hvort sem er lokaútfærslu hans eða tímabundna útrás hans seinna meir. Sé þess kosið, getur Félagi Afturhaldskommatittur sent merki til hins græna arms um það að nú verði „Stafræna hermanninum“ sleept og skal það engu skipta lengur, því fjöll munu falla, stafir eigi standa... hér mun armageddon hinnar hugandi alþýðu verða. Því verða mín lokaorð til þín æðsti Afturhaldkommatittur þessi: "Komi til þess að þessu vítistóli verði sleppt lausu, megi þá börn okkar og börn óvinana leika sér saman ofaná þeirri sviðnu jörð sem eftir er".
Horfir alvarlega frammí salinn
Félagar og aðrir borgarar Baggalútíu, í dag er stór dagur... kannski sá stærsti sem að við munum lifa. Tæknin er fyrir hendi, herra og félagi Afturhaldskommatittur... tæknin er fyrir hendi. Best er á kosið að hunsa siðferðislegu hliðina, því ef vér vinnum veitir henni enginn athygli, nú ef vér töpum, verðum við að biðja börn okkar um að rækta það upp sem einu sinni var, og þau munu ekki þekkja hugtakið siðferði.
Rís upp og klappar Kuggz lof í lófa
Vel mælt, félagi Kuggz, vel mælt. Þú hefur að ég held sannfært allan flokkinn um ágæti hins stafræna hermanns. Gef ég því fullt frelsi til þess að hefja á honum þróun að fullum krafti. Nú er einungis að bíða svari frá fulltrúum aðalsins við kröfu okkar um réttmæt aukin ítök. En þróunin á vopninu fer fram hvað sem því líður. Einungis ef við höfum vopnið í höndum okkar og getum sýnt fram á áhrifamátt þess mun það virka sem samningstæki í höndum okkar.
Lyftir vodkaglasi
Skál ... fyrir stafræna hermanninum og framtíðinni!
Lyftir vodkaglasi einnig
Já, skál! Lifi byltingin!
Situr fremst á alltof stórum stól og dinglar löppunum niður og leikur sér með tyggigúmmí. Klappar ástríðufullt fyrir Kuggz og biður hann um að árita barm sinn
Áritar barm Ísis samhliða því sem hann þakkar viðtökurnar
En við skulum þó geyma flöskurnar í örfáa tíma í viðbót... því nú líður að þeirri stund að vér getum loks borið augum það gjöreyðingarvopn sem hinn „Stafræni hermaður“ er.
Flautar á skuggalega félaga í græna arminum að tími sé til kominn, vívöllurinn kalli og allir halda þeir á braut
Ljómandi gott! Ég segi því árangursríkum fundi formlega lokið.
Raðar pappírum, stendur á fætur og tekur í hendur viðstaddra í kveðjuskyni
Ehrmm.....varla ætlum við að senda "stafræna hermanninn" út strax?
Ætluðum við ekki fyrst að reyna að sannfæra yfirvöld um að verða við kröfum okkar?