Hugsar með sér hvort það er ekki hægt að púzla mér saman aftur
Snýtir sér líka á Harald Austmann
Ehh....er einhver þarna úti sem er góður í þrautum og púslum?
Snýtir sér líka á Harald Austmann
Setur upp fyrirlitningasvip Færir þessu kommúnistahyski baráttukvæði og maður uppsker hor í staðinn.
Skeinir sér á pappírssnifsi með lélegu kvæði eftir Harald Austmann
Ég held að það sé rétt að fara að safna hrís í góðan bálköst, Haraldur.
Já, ég held það sé rétt. Og smyrja þumalskrúfurnar og kistu-Maríurnar.
Þá mun verða glatt á hjalla. Við höfum burði til að mæta hvaða ógn sem er.
Urrar illilega
Vanmeta munuð þér ógnina enda eigi allur Hreintrúarflokkurinn á listanum yfir óvini Kommúnistaflokksins.
Ég þekki gamlan smið, sem gæti verið liðtækur við að smíða gapastokka. Svo mætti hafa þessa kommúnistadindla til sýnis á Lækjartorgi á sunnudögum. Við gætum líka leyft almenningi að dangla í þá með leðurólum. Þetta væri kjörin dægrastytting til viðbótar því að gefa öndum og gæsum Tjarnarinnar brauð.
Riddarinn krefst þess að vera settur á lista yfir óvini þessa flokks, og hana nú
Riddarinn krefst þess að vera settur á lista yfir óvini þessa flokks, og hana nú
Ósk þín er mér sem skipun, þú þý aðalsins.
þér fylgist ekki vel með, vér erum aðalsnaður Sir Heiðglyrnir hinn hugdjarfi, var sleginn til Riddara af ástsælum konungi vorum, tæpast þý aðalsins, VÉR ERUM AÐALINN. OG EKKERT MÚÐUR
Ég biðst innilegrar afsökunar, herra riddari. Þetta er þeim mun meiri ástæða til að skrá þig. Þú ert og verður á listanum þar til þú afsalar þér tign þinni og sýnir áhuga á því að þjóna hagsmunum öreiganna.
Herra minn, þegar þið eruð búnið að gera alla að öreigum, eiga þeir hjáp Riddarans og Hreintrúarflokksins vísa, þó mælum við með, að allir sleppi þessum leiðilega öreiga millikafla og komi bara strax í lið með okkur.
Herra minn þér eruð velkominn, og þarft ekki að afsala þér einu eða neinu.