Eins og Köttur var hún Eva
Epli í Skógi sá einn Hegri
Aulinn Adam fór að slefa
Amors Snák sinn þótti Fegri
NO : Mörður - Kópavog ( ur ) i- Dóni - Gunnar
Dóni er Gunnar garmurinn
gengur eins og mörður,
í Kópavogi hófst kvennseminn
karlinn er stöðuvörður.
Næst,., Bangsi , hattur, Askur,,trúður,
Bangsimon með hattinn háa
hrópar: Ekkert múður!
Askinn bar að brunni kráa
bústinn loðinn trúður.
næstu orð: Hrafn, ungar, krásir, krunk
Krunka yfir krásum
Krummaungar svangir
Í bleikum hröfnum hásum (*)
heyrast skrækir langir
(*) Vísar til 'ljóðs' eins nokkuð þekkts er tölva 'orti' fyrir löngu
Bull, tölvur, ljóð, atóm
Bull í tölvum bölvað er
betra atóm ljóða,
allt er komið efra hér
er þú varst að bjóða.
Næst., Klettur, .lerki,, Jakuxi,., Fljót..,
Kletti á stendur kvíga ein væn
kynþátt sig telur til jakuxa
Lerkinu við hún leggst á bæn
Lagar um fljóts hún er að hugsa.
(áhersla á ux og hugs – áhersluleysa á jak og að)
Næst: Friðrik, eitrað, sextánda, fórn.
Fljótaklettur , lax og lerki
ligg á bakka hugsin
Kobbi kom og hafði verki
Kommonista jakuxinn
Blahhhhhhh of sein jæja littla tryppið sú næstneðsta á síðustu síðu fær réttinn
Eitruð Friðriks fórnin var
Fórnaði henni Siggu Dúnu
Sextánda það kellu skar
Sér að brosti af því búnu
NO : Þvörusleikjir , Stompur , Skeit , óþekk
Strompinn í hann jafnan skeit
Sveinninn ófríði Þvörusleikir
Óþekk börnin ósjaldan leit
ótuktarlegur hann þau veikir
Næst: Galdrameistarinn, Ívar, Dillinger og Hundinginn
Galdrameistarinn hann gengur laus
glaðbeittur hundinginn.
Ívar Dillinger datt á haus
dáleiddur ræfilinn
Næst,, Gos,. kassi ,, Hlunkur,,Fuglahræða,,
Fituhlunkur fyrir gos
Fuglahræða sat á rassi
Myglaður sem Ms dos
Munstraður eins og kassi
Næsta pína : Sæmi - Bobby -Rokk- Fischer
Sæmi rokk sat á stokk
sagði "Fokk" og dróg upp bokk[u]
Bobby sokk bað um lokk
Ber með þokka Fischer smokk.
Næst: Sigmund - skopteikningar - SUS - hræsnarar
Sigmund með finar skopteikningar
Sus eru mikkir hræsnarar,
til Vestmannaeyja vesalingar
vistuðu allar myndirnar,
+
Næst,, Gata ,, tunna ,, stallur ,, hjól
[það er nú meira þessar endurteknu innlagnir á innlegjum hjá þér Krummó, bölvuð vinna að eyða þessu. Barbap.]
Jæja ef Krummo er hættur að stama þá svara ég
Gunna tunna götu stallur
gerðist kræf á hjóli
Rykmökkur og reykjar hnallur
ræsir all´úr bóli
Næst :Dagur -lengir-Dimma -Dvínar
Dagur -lengir-Dimma -Dvínar
Nætur lengir dagur dvín
dimman eykst og þykknar.
Hlauptu góði heim til þín
hræðslukenndin kviknar.
Næst: varir-víf-hungruð-kona
Þægilegt er þetta líf,
þungað eins og kona
Hungrað sleikir varir víf;
veröldin er svona.
Næst: erfið, brekka, blanda, gras
Klassi!
Það er erfitt argaþras,
ærin mædda sagði,
að standa í brekku og bíta gras
blandað fosfatbragði.
Næst: frétt-hundur-hamar-dagur
Frétt ég hafði af hund um daginn
hamar stórann kvutti bar
að smíða var hann víst ekki laginn
vantaði á greyið hendurnar.
Köttur .,eldstó,, dolla,,fugl