Minnir Tigru á að orð geta líka sært, alveg jafn mikið og hnefi með hnúfajárni
Hvað með hvassar tígrisdýraklær og tennur?
Ég þegar ég er búinn að flá þig og verka
Hvað með hvassar tígrisdýraklær og tennur?
Já það er nú lítið betra..vildi ég þá heldur mæta járninu
Ég vill endurtaka umsókn mína sem trommuleikari í þessari hljómsveit.
Og já, í Baggalútíu er allt hægt, svo auðvitað get ég spilað á tvísleggjur fyrir bassatrommuna!Glottir
Lokaskipan Pognorkíam er þessi -
Slipknotfan13 - Öskrari, textasmiður og þeramínleikari
Galdrameistarinn - Bassaleikari
Mikill Hákon - Aðalgítarleikari
Sprellikarlinn - Trommari
Ívar Sívertsen - Hljóðmaður
Vamban - Keytarleikari
Amon - Rótari og kraftakarl
Hilmar Harðjaxl - Dansandi karlmaður í búri
Nornin - 1. Grúppía
Tígrisdýr, lukkudýr og sviðsdýr - Tígra
Þarfagreinir - Umboðsmaður
Ég býð Ívar velkominn til liðs við Pognorkíam og vona innilega að þátttaka hans í þessum hljóðmorðum okkar muni hjálpa honum að gleyma þeim tíma sem hann eyddi með Milli Vanilli.
Þarfagreinir er þörf viðbót við liðsheildina og treysti ég á að hann sé þegar farinn að ráða okkur til spilunar á hinum ýmsustu dauðarokks og víkingametal festivölum víðsvegar um Noreg.
Sprellikarlinn er hér með fastráðinn trommari og Vamban mun þenja keytarinn.
Banjó verða engin, alls engin.
En mikil eru vonbrigði mín með augljósan skort á dansandi búrmeyjum. Er engin hnáta tilkippileg til að skaka fót léttklædd í búri? Hilmar Harðjaxl er áreiðanlega meira en til í að kenna dömunum nokkir hress múv til að nota í búrinu.
Ég ræð sjálfan mig hér með í starf pródúsents...
Onei, enga Phil Spectora hingað. Ef og þegar þörfin vaknar fyrir pródúsent munum við máski fara á fjörurnar við þig, en við krefjumst þess að pródúsentinn sem ráðinn verður á endanum verði ótalandi, síslefandi og neyti ungbarna í morgunmat. Einnig verður hann að geta tekið Hilmar í sjómann.
Er grænn litur máské málið?
Kaupir tónlistariðnað Baggalútíu og sameinar í eitt fyrirtæki. Skráir allt draslið á einkaleyfisskrifstofum um allan heim.
Býður Rennihnútsviftunni 50% eignarhlut
Ég er viss um að Hakuchi leyfir ykkur að halda tónleika á Kátu kanínunni. Vantar ykkur ekki annars PR mann? Ég hef útlitið og burðina í það.
Sem umboðsmaður legg ég til að við byrjum ferilinn á því að ávinna okkur nafn með því að spila á skítugum og vafasömum börum.
Sem umboðsmaður legg ég til að við byrjum ferilinn á því að ávinna okkur nafn með því að spila á skítugum og vafasömum börum.
Þá kemur Káta kanínan auðvitað ekki til greina Starir þegjandi út í loftið
Er grænn litur máské málið?
Ef þú!
Sem umboðsmaður legg ég til að við byrjum ferilinn á því að ávinna okkur nafn með því að spila á skítugum og vafasömum börum.
Þá kemur Káta kanínan auðvitað ekki til greina Starir þegjandi út í loftið
Við getum alltaf skitið hana út fyrirfram.
Annars er ég með mjög lágkúrulegar hugmyndir að PR herferð. Mig vantar bara ráðningarsamning.
Sem umboðsmaður ræð ég hér með Muss S. Sein sem PR mann númer eitt. Skrifaðu undir hér.
Dregur upp úr pússi sínu einstaklega langt og leiðinlegt skjal og afhendir Mússa
Les pésann í gegn. Tvisvar.