Hér með stofna ég fyrsta bílskúrsband Baggalútíu og mun það bera nafnið "Pognorkíam".
Pognorkíam spilar norskan víkingametal af bestu gerð, kryddað með 5-8 mínútnalöngum Þeramínsólóum.
Yrkisefni Pognorkíam munu vera af víkingametölsku tagi, það er norræn goðafræði í heild sinni.
Meðlimir Pognorkíam munu ávallt koma fram með víkingahjálma á höfði og íklæddir skyrtum ofnum úr lundafjöðrum, nema þegar þeir hafa makað sig drullu og koma þá fram allsnaktir (fyrir utan drulluna að sjálfsögðu).
Sjálfur sem ég alla texta, öskra og leik á þeramín og lýsi ég hér með eftir gítarleikara, bassaleikara, trommuleikara, keytarleikara og tveimur meyjum til að dansa naktar í búrum með víkingahjálma á hausnum á tónleikum.
INNSKOT -
Lokaskipan Pognorkíam [ í dag, þann 8. desember á því herrans ári 2004] er þessi -
Slipknotfan13 - Öskrari, textasmiður og þeramínleikari
Galdrameistarinn - Bassaleikari
Mikill Hákon - Aðalgítarleikari
Sprellikarlinn - Trommari
Ívar Sívertsen - Hljóðmaður
Vamban - Keytarleikari
Amon - Rótari og kraftakarl
Hilmar Harðjaxl - Dansandi karlmaður í búri
Nornin - 1. Grúppía
Tígrisdýr, lukkudýr og sviðsdýr - Tígra
Þarfagreinir - Umboðsmaður
Ég ræð þig sem rótara, og greiði þér með hreinum meyjum eftir hverja tónleika. Sem rótari er það ekki aðeins þitt hlutverk að róta fram hljóðfærum, pyntingartólum og búrsnótum, heldur einnig að halda æstum múgnum frá hljómsveitarmeðlimum meðan þeir fremja tryllingslega músíksköpun sína á sviði.
Æðislegt, ég mun ekki bregðast þér ! Skelli mér í réttstöðu
Sækir snarlega um sem bassaleikari.
Ræður Galdrameistarann snarlega sem bassaleikara
Ekki amalegt að hafa galdrakarl í hópnum.
Skálum félagar! Hér er allt að skríða saman í eina mögnuðustu hljómsveit allra tíma!
líst vel á stefnuna sem hljómsveitin er að taka. Laumar ofurlitlu englaryki í drykkina til að "gera þá soldið meira rokk!"
Fetar sig upp eftir regnboganum og áttar sig á því að fætur hans eru aðrar verur en hann hélt. Eltir fætur sína örlítinn spöl en dettur um grænan greifingja sem kyssir hann.
Hleyp eftir gullnum klósettpappír sem virðist aldei ætla að enda hvar er fíllinn sem var með andlit músarinnar sem ég sá hér áðan? Dett á bleik ský sem bera mig heim til Grimmhildar, sætu stelpunar í Breiðholtinu
Hugsar um til allra sætu grúppína sem eiga eftir að koma í þessa hljómsveit
Pant vera aðalgítarleikarinn!
Gefur frá sér vellíðunarstunu og plokkar bassann liprum fingrum.
tekur eitt geðveikislegt hálftíma gítarsóló og rífur sig úr að ofan á meðan
spilar með öllum mögulegum útlimum