— GESTAPÓ —
Bílskúrsband Baggalútíu - Pognorkíam
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2, 3 ... 16, 17, 18  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 27/11/04 18:42

Hér með stofna ég fyrsta bílskúrsband Baggalútíu og mun það bera nafnið "Pognorkíam".
Pognorkíam spilar norskan víkingametal af bestu gerð, kryddað með 5-8 mínútnalöngum Þeramínsólóum.
Yrkisefni Pognorkíam munu vera af víkingametölsku tagi, það er norræn goðafræði í heild sinni.
Meðlimir Pognorkíam munu ávallt koma fram með víkingahjálma á höfði og íklæddir skyrtum ofnum úr lundafjöðrum, nema þegar þeir hafa makað sig drullu og koma þá fram allsnaktir (fyrir utan drulluna að sjálfsögðu).

Sjálfur sem ég alla texta, öskra og leik á þeramín og lýsi ég hér með eftir gítarleikara, bassaleikara, trommuleikara, keytarleikara og tveimur meyjum til að dansa naktar í búrum með víkingahjálma á hausnum á tónleikum.

INNSKOT -

Lokaskipan Pognorkíam [ í dag, þann 8. desember á því herrans ári 2004] er þessi -

Slipknotfan13 - Öskrari, textasmiður og þeramínleikari
Galdrameistarinn - Bassaleikari
Mikill Hákon - Aðalgítarleikari
Sprellikarlinn - Trommari
Ívar Sívertsen - Hljóðmaður
Vamban - Keytarleikari
Amon - Rótari og kraftakarl
Hilmar Harðjaxl - Dansandi karlmaður í búri
Nornin - 1. Grúppía
Tígrisdýr, lukkudýr og sviðsdýr - Tígra
Þarfagreinir - Umboðsmaður

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Amon 27/11/04 18:44

Vantar þig útkastara eða öryggisvörð? ‹fæ mér smók›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 27/11/04 18:50

Ég ræð þig sem rótara, og greiði þér með hreinum meyjum eftir hverja tónleika. Sem rótari er það ekki aðeins þitt hlutverk að róta fram hljóðfærum, pyntingartólum og búrsnótum, heldur einnig að halda æstum múgnum frá hljómsveitarmeðlimum meðan þeir fremja tryllingslega músíksköpun sína á sviði.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Amon 27/11/04 18:51

Æðislegt, ég mun ekki bregðast þér ! ‹Skelli mér í réttstöðu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Galdrameistarinn 27/11/04 18:52

‹Sækir snarlega um sem bassaleikari.›

Sofandi vert á Kaffi Blút nema þegar hann er vakandi. • Skemmdarverka og hryðuverkamaður í hjáverkum, aðalega á kveðskaparþráðum.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 27/11/04 18:56

‹Ræður Galdrameistarann snarlega sem bassaleikara›

Ekki amalegt að hafa galdrakarl í hópnum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Amon 27/11/04 18:57

Skálum félagar! Hér er allt að skríða saman í eina mögnuðustu hljómsveit allra tíma!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 27/11/04 19:03

‹líst vel á stefnuna sem hljómsveitin er að taka. Laumar ofurlitlu englaryki í drykkina til að "gera þá soldið meira rokk!"›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Amon 27/11/04 19:08

‹Þambar 5lítra krús með öli›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
SlipknotFan13 27/11/04 19:14

‹Fetar sig upp eftir regnboganum og áttar sig á því að fætur hans eru aðrar verur en hann hélt. Eltir fætur sína örlítinn spöl en dettur um grænan greifingja sem kyssir hann.›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Amon 27/11/04 19:16

‹Hleyp eftir gullnum klósettpappír sem virðist aldei ætla að enda› hvar er fíllinn sem var með andlit músarinnar sem ég sá hér áðan? ‹Dett á bleik ský sem bera mig heim til Grimmhildar, sætu stelpunar í Breiðholtinu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 27/11/04 20:41

‹Gerist grúppía›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Amon 27/11/04 20:42

‹Hugsar um til allra sætu grúppína sem eiga eftir að koma í þessa hljómsveit›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 27/11/04 20:59

Pant vera aðalgítarleikarinn!

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 27/11/04 21:05

‹fylgist með›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Galdrameistarinn 27/11/04 21:06

‹Gefur frá sér vellíðunarstunu og plokkar bassann liprum fingrum.›

Sofandi vert á Kaffi Blút nema þegar hann er vakandi. • Skemmdarverka og hryðuverkamaður í hjáverkum, aðalega á kveðskaparþráðum.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 27/11/04 21:08

‹tekur eitt geðveikislegt hálftíma gítarsóló og rífur sig úr að ofan á meðan›
‹spilar með öllum mögulegum útlimum›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 27/11/04 21:43

‹Æpir og fellur svo í yfirlið af súrefnisskorti›

     1, 2, 3 ... 16, 17, 18  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: