Ekki var það Married to the Mob. Myndin ku vera byggð (amk að einhverju leyti) á sönnum atburðum.
Hvorki Casino né GoodFellas. Myndin fjallar um ævi eins klíkumeðlimsins, nánast frá vöggu til grafar.
Menace to Society var það ekki. Legg til að menn horfi nokkra áratugi til baka.
Nei, ekki Bitter Moon. Myndin er frá byrjun síðasta áratugar síðustu aldar. Gerist c.a. 1910-1950 og við sögu koma margir af frægustu gangsterum þess tíma.
Þú ert alveg grenjandi heitur, Mobsters er það ekki en umrædd mynd skartar mörgum sömu karakterum.
oooooohhhhh, ég gat fundið lyktina af sigrinum, en svo ekkert.
er þetta þarna myndin með robert deniro... æji ég man ekki alveg hvað -hún heitir
Nei, Nei og Nei. Myndin ku vera biographia og ber gælunafn aðalsöguhetjunnar.
argh! ekki er það scarface? (sá hana fyrir mörgum, mörgum árum svo ég man ekki alveg söguna)
Hmm...gerist scarface ekki seinna ? Mundi halda að þetta væri á tímum Capone - og myndin sennilega um einn helsta samstarfsmann hans - man samt ekki hvað hann hét ?? Æi, veit svo fátt...Starir þegjandi út í loftið
Ekki var það Scarface. Myndin gerist að hluta til á tíma Capones en ekki minnist ég að Capone komi við sögu hennar. Las Vegas kemur talsvert við sögu þessarar myndar.