Psh. Var þetta svona auðvelt? Jæja, þú átt leikinn, Van Horn!
Ok, hér kemur ein létt: Hvað leikarar sem leikið hafa í Bondmyndum hafa fengið Óskarsverðlaun?
Það er hægt að gera betur en þetta. Ef við höldum okkur við hina opinberu seríu þá vil ég fá amk. þrjú nöfn til viðbótar.
Christopher Walken fékk óskar. Ætli Louis Jordan hafi ekki fengið óskarinn líka á sínum tíma (vondi kallinn í Octopussy)? Hmmm....sjáum til, svo giska ég á Jonathan Pryce, þó ég efist um að hann hafi fengið óskar.
Kannski Klaus Maria Brandauer úr "Never Say Never Again" eða Topol úr "For Your Eyes Only" Sú síðarnefnda fannst mér lengi vel vera besta Bondmynd ever
Christopher Walken kemur réttur inn og þar með vantar enn tvo. Tek enn fram að Never Say Never Again er ekki með en hún lumar á einum til viðbótar þó ekki sé það Brandauer.
Er Bond leikurinn að deyja... ég hef ekki hugmynd um þetta Van horn, einhverjar vísbendingar?
Ég giska á vonda kallinn, góða kallinn, kallinn í aukahlutverkinu, hinn góða og svo aðal vonda.
Það má ekki drepa þetta. Annar leikarinn er núverandi fastagestur í myndunum, hinn lék í annarri Dalton myndinni.
Hefur John Cleese ekki fengið óskar?
Benicio Del Toro lék víst í License to Kill. Hann hefur hreppt styttu.
Þessu öllu til viðbótar hefur Judi Dench fengið Óskarsverðlaun.
Mikið rétt, þetta voru semsagt, Connery, Berry, Del Toro, Dench og Walken sem ég var að fiska eftir, þessu til viðbótar má nefna Kim Basinger úr Never Say Never Again og eflaust einhverja úr Casiono Royale, s.s. David Niven.
Þar sem Fuckov kláraði þetta er þá ekki best að hann eigi næsta leik.
Fuckov! Ekki drepa þennan stórskemmtilega leik!