Fínt veður, ef maður er innandyra. Gerir ráð fyrir að það sé frekar kalt úti.
Sæmilega sæmilegt.
skítt
Ömurlegt. Þetta veður eyðilegur alla mína lífsgleði.
Setur „Don't worry, be happy“ á fóninn
Þetta er þó skárra en norðanóveðrið um daginn. Nú er rigning og talsverður vindur en hlýtt (9-10 stig). En gallinn við þetta er hvað veður þetta er drungalegt; vart er hægt að segja að birt hafi í dag og nú er engu líkara en nánast sé komin nótt.
Hér rignir nú ösku og eimyrju og brennisteinsfnykurinn liggur líkt og mara yfir kyrrlátum bænum. Þvottakústar bensínstöðva fá góða hreyfingu í dag.
Í dag var rólegt en frekar svalt. Hitinn fór niður í 9°c um kl. 16 það hefur ekki gerst áður síðan ég kom hingað út. Það hefur verið einhver úrkoma í bænum en ég hef alltaf verið hinum megin í bænum eða inni þegar hún hefur komið. Nú er komið myrkur og það er þungskýjað.
-
Það er orðið svo dimmt að ég sé ekki til veðurs. Fannst ég heyra í rigningu áðan, en það gæti verið vitleysa í mér.
Alltaf gaman að vita af þessum tröllgerpum. Létta af sér hvar sem er hvenær sem er.
Allavega er þessi orð eru skrifuð er veðrið bara nokkuð skemmtilegt! Það er þó aldrei að vita nema mígandi harðæri sé á næstunni. Íslenskt veður er...við skulum segja... einstakt.
Það snjóaði í morgun svo að þetta leit vel út en núna er kominn sól svo að ég er kominn inn og er búinn að draga fyrir.
kaaaaaaaaaaaalt!