Klepraskyr.
Dvergur sem er svo lítill að það er táfýla af hárinu á honum.
-
Merbendill
Dularfull vera í manns líki sem sést oft við hesthús á suðurlandi
Schultzsing
Þegar knattspyrnumenn láta sig detta að tilefnislausu í leik
Merbendill
Dularfull vera í manns líki sem sést oft við hesthús á suðurlandi
Hundingi, hér væri kjörið tækifæri að stoppa aðeins og athuga hvernig þráðurinn virkar.
Sá sem lagði inn síðasta innlegg á undan þínu hefur lagt fram eitthvað hugtak eða vandamál. Þitt verk er þá að koma með nýyrði fyrir það. Svo endar þú þitt innlegg á vandamáli fyrir þann næsta.
Mér datt bara í hug að benda þér á þetta.
-
Napsi.
Napsi merkir útvarp og reyndar hef ég notað þetta orð í nokkur ár. Þá spyr ég oft, hvað er í napsanum?, eða segist ætla að hlusta á napsann.
Bullufall
Gin í Greip
Handdrykkur
Hvað kallast þeir sem rugla þráðum?
Þrestir.
Menn sem bikkjusmella? Biðst velvirðingar á miskilningnum. Vitlaus var ég.
Bermatanar
Stekkur hæð sína
Kúrekahattur sem búið er að keyra yfir tvívegis.
klattur
Þegar maður byrjar að geyspa þegar maður sér annann mann geyspa. geyspar
Ginglenna
Klósettpappír sem hefur verið notaður ótæpilega í snýtingar.
Skrúfuholur
Byssa sem lítur út eins og klarinett.
(Tengi ekki saman ,,húsa" við snýtipappír)
Nett & Wesson
tilfinningin þegar maður mætir einhverjum/rri sem maður er ekki alveg klár á hvort/hvernig maður þekkir og hvort/hvenær/hvernig maður svaf hjá
Þekkimóða
Tilfinningin þegar maður vaknar á morgnanna, drífur sig í stressi á fætur og uppgötvar, þar sem maður er að rjúka í eldhúsið að fá sér morgunmat, að klukkan er 7:45 Á SUNNUDEGI!
Bráðavöknun
Það vonleysi og sú depurð sem maður fyllist við að sjá ungmenni þessa lands ekki einu sinni getað hafið setningar á stórum staf.
Málarfsdepurð
Sú tilfinning að einhvers staðar, einhvern veginn, sé önd að horfa á mann.