Fikta ég við framboðsmál og fer á þing
ef plönum mínum kem í kring.
Kringum mig fimm kettir sitja og kátir mala.
Þú og Jóka þeim kannt smala.
Smaladrengur smurt með nesti smakkar bita,
hann fór í gegn sem flæðiskita.
Skitu fékkstu af flöskubjór er fannstu á reka.
Flöskurnar þær fóru að leka.
Leka- hef ég -liði snert og lent í stuði,
ég þarf að hætta þessu puði.
Puða ég og píni mig að pretta alla.
Þetta segja sumir galla.
Galla- hef ég -gripi smíðað, gretta og ljóta.
Þeir niður ána núna fljóta.
Fljóta skriftir fá hjá mér oft fyrri partar.
Leirburður minn illa artar.
Artarleg hún er við mig og oft mér þjónar.
Eldar mat og á mig prjónar.
Prjónaðir þú peisur; þóttiu prýðisgóðar.
gersemi mest þinnar þjóðar
Þjóðarsómi þykir hann sem þingi stjórnar,
aurum bæði og frægð hann fórnar.
Fórnar öllu fyrir skraut og fordild sína.
Segir ávallt: Allt í fína.
Fína hef ég fólkið skeint og flaðrar upp um;
bragð er gott af heldri huppum.
Huppa á Kluftum heiðurskýr ég hennar minnist.
Betri held ég fáar finnist.
Finnist einhver fegurri en fröken heimur
fær hún titil: fröken geimur.
Geiminn víðan glápir upp í; Guðs hann leitar
Til hans berast bænir heitar.
Heitar lummur hef ég í mig hámað margar
eins og ég sé ótal vargar.
Vargar ólmir virðing minni vilja ræna.
Öfundin þá gerir græna.