Eru launin útreiknuð
og allra besta máta.
Eru tuðin tileinkuð
þeim tyrtnu sem nú gráta.
Þú skalt fram með létta lund
liðsemd veita þjáðum.
Þú skalt fram með létta lund
liðsemd veita þjáðum.
Leyf mér hvílast litla stund
liðsemd veiti bráðum.
Engan sá ég svæsnari
en Sumarliða fantinn.
Engan sá ég svæsnari
en Sumarliða fantinn.
Hristist nú sá hræsnari,
ég hrakt'ann út í kantinn.
Alltaf veit ég allra best
og æski þess menn hlýði.
Alltaf veit ég allra best
og æski þess menn hlýði
Kalla þú mig kóng og prest
og kenn það öllum lýði.
Alltaf sjálfan mig ég met
mesta snilling landsins.
Alltaf sjálfan mig ég met
mesta snilling landsins.
Aldrey þefa annars fret
og ekki neyti hlandsins.
Telur þú að teljist rétt
að teskeið vegi kíló?
Telur þú að telljist rétt
að teskeið vegi kíló?
Telst þá efnið afar þétt
og það geymir síló.
Hugsa ég um hagnýt þrif
og hússtjórn góða.
Hugsa ég um hagnýt þrif
og hússtjórn góða.
Mæri Fúsa-Möggu skrif,
en minna sóða.
Kúst og fæjó kem ég með
í kökuboðið.
Kúst og fæjó kem ég með
í kökuboðið.
Húsráðenda og gesti gleð.
Gott ráð skoðið.
Gætið ykkar gólf er hált
Gangið, hlaupið ekki.
Gætið ykkar gólf er hált
Gangið, hlaupið ekki.
Á að falla ekki er strjált
eða fá af hnekki.
"Ég um mig" frá mér til þín
er morgungjöfin besta.
"Ég um mig" frá mér til mín
morgungjöfin besta,
segi ég er veiti vín
vinum meðal gesta.
Bláhveldur himinn blómi í fjallageira
blikfögur sól og þykkur töðuflekkur.
Bláhvelfdur himinn, blómi í fjallageira.
Blikfögur sól og þykkur töðuflekkur.
Lækurinn niðar, ljúfast er það að heyra.
Lífið um kring þetta allt í botn nú drekkur.
Til að draga björg í bú
er bezt að vinna lengi.
Til að draga björg í bú
er bezt að vinna lengi.
Því vinnu hörku tók ég trú
tæpast þetta rengi.
Engir þungir þrældómshlekkir
þyngja okkar starf.
Engir þungir þrældómshlekkir
þyngja okkar starf.
Enginn hér á okkur klekkir
enda billegt garf.
Við bláma himins blika ský
sem bærast hægt um hvolfið.
Við bláma himins blika ský
bærast hægt um hvolfið.
Þó angrar okkur mikið mý
svo margur hefur skolfið.
Myrkravöldin mega ekki
mannkyn leiða á heljarslóð.
Myrkravöldin mega ekki
mannkyn leiða á heljarslóð.
Upp því brjótum alla hlekki
og öslum berfætt heimsins glóð.
Rigning hefur reynst mér vel
svo renni óséð tárin.
Rigning hefur reynst mér vel
svo renni óséð tárin.
Svo hef ég um mig harða skel,
sem hylur verstu sárin.
Í höm ég sat í hríðarbyl
hokinn, beið 'ann lygndi.
Í höm ég sat í hríðarbyl
hokinn, beið 'ann lygndi.
Í pyttlu átti annan til
sem oní kok mér rigndi.
Taktu ofan, sérann sagði,
seinn ert þú til messunnar.
Taktu ofan sérann sagði
seinn ert þú til messunar.
Þá lyfti eg hatt með hýru bragði.
Honum óskaði blessunar.
Úr mínum penna ljóðin leka
leirug mjög og ekki góð