Blasir við í bjartri sólu Búðardalur.
Útnyrðingur er hér svalur.
Svalur, Valur, Sveppi, Gormur sem og Pési
bonda nú á bókarfési.
Bókarfésið bölvum verst er Baggalúti
Óskandi því einhver stúti.
Stútinn sá ég staulast áfram stutta veginn.
Alltaf virðist aukast treginn.
Trega ég að tekinn var af Trumpi sigur.
Skildi Kana skjóli og vigur.
Vigurættin vildi burt og Vigur seldi.
Óðal missir ættarveldi.
Veldi Pútíns virðist núna vera mikið,
en fautinn hefur friðinn svikið.
Svikið hef ég svakalega svartan héra.
Prakkarann í pott má skera.
Skerum niður, skenkum ríkum, skatta lækkum.
Aumingunum ört þá fækkum.
Fækkum þeim sem fá að taka frí um sumur.
Fagna mun því frú og gumur.
Gumar núna gleðjast mjög því gott er veður.
Blítt því veður guma gleður.
Gleður mig að góð er tíð og gangur hraður.
Fagnar því hver ferskur maður.
Á manneskjum og mönnum fyrr var munur enginn.
Núna munur nýr er fenginn.
Fenginn var til fyljunar einn foli góður.
Ekki lítið eykst hans sjóður.
Sjóðum ríkis ríkir verða að rétta glaðning
fátækir svo fái saðning.
Saðningu af soðningu ég sjaldan þakka,
kjötmáltíðar krefst á bakka.
Bakka reyndu bræðurnir að bakka vagni.
En þá skorti alla lagni.
Lagningu ég lagði í og lét það malla.
Ósköp bjart nú skín af skalla.