Tímaskál og rúmskeið til sölu.
Hafið samband í síma stutt langt stutt stutt.
Mig bráðvantar húsnæði til að sinna áhugamálum.
Þarf að vera tvískipt´
Annar helmingurinn er ætlaður fyrir blómarækt en í hinum langaði mig til að dunda mér við smá rannsóknir á hinu og þessu. Því dundi fylgir töluverð eterlykt.
Einnig bráðvantar mig brennisteinssýru.
Löggæsla má ekki vera mikil á svæðinu.
Bláberjasulta af súru gerðinni til sölu, upp í tek ég sæta rabbabarasultu.
Sæmi.
Til sölu farsími, með öllum bjöllum og blýstrum sem hægt er að hugsa sér.
Síminn er í fullkomnu lagi - nema númerið í honum er eitthvað bilað.
Ætla að uppfæra í síma með númeri sem einhver hringir í.
Verð: að selja þennan síma.
Þar sem fyrri kaupandi hefir ekki vitjað vörunnar, er nú í boði vænn lager af Færeyingum.
A.v.á
Hver er áfengisprósenta þessa lagers?
Hundur í óskilum
A.V.Á
Ljótu Hálfvitarnir að týna hundinum svona...