Heill forseta vorum, fósturjörð
og fótboltalandsliði!
Heimskautafroskahjörð
hefur rænt mig friði.
Fúsi var furðu lostinn
og fjálglega sagði:
Fúsi var furðu lostinn
og fjálglega sagði
Þar kemur Ossa með ostinn
á ofninn hann lagði.
-----------------------------------
Ljósið á týrunni logar
og lýsir upp bæinn.
Ljósið á týrunni logar
og lýsir upp bæinn
meðan Torfi úr buxunum togar
tittling og mígur í sæinn.
Það dró fyrir sólu og dimmdi um sinn
því Davíð vor náði ekki kjöri
Það dró fyrir sólu og dimmdi um sinn
því Davíð vor náði ekki kjöri,
en dagaði aftur því Davíð hinn
djarflega í stjórnmálin snöri.
Stúlkan leit á mig og mælti:
"Maðurinn er róni"
Súlkan leit á mig og mælti:
"Maðurinn er róni"
Vinur minn sá vöfðastælti
var samt enginn dóni,
Bráðum verður Ísland allt
auðugra en fyrrum.
Bráðum verður Ísland allt
auðugra en fyrrum.
Verðtryggingin vegur salt,
en vöxtum haldið kyrrum.
Hagvöxturinn hækkar víst
hamingjunnar stuðla
Hagvöxturinn hækkar víst
hamingjunnar stuðla
Ef þú Framsókn aftur kýst
er áfram hægt að bruðla.
Tíðarfarið léttir lund
leikir auka gleði.
Tíðarfarið léttir lund
leikir auka gleði.
Labbirðu út með haltan hund
hundfúlan í geði.
--------------------------------------
Hugsaðu um það stutta stund
stubburinn minn góði.
Hugsaðu um það stutta stund
stubburinn minn góði:
Ef að þú sýður haltan hund
hrærðu þá vel í blóði.
Blóðhundar með bláa ól
bíða nú í röðum.
Blóðhundar með bláa ól
bíða nú í röðum,
og rauðir seppar reka upp gól
því rændir verða stöðum.
Ég get ekki ort
því ekkert dettur í minn hug.
Ég get ekkert ort
því ekkert dettur í minn hug.
Notarðu kredit kort?
klaufi af verstu sort .
-------------------------------
Eftir fjandi þunga þraut
þambaði vatn úr glasi.
Eftir fjandi þunga þraut
þambaði vatn úr glasi.
Reynist ég á réttri braut
restar þessu brasi.
Endar þetta sumar senn
söngfuglarnir þagna,
Endar þettað sunar senn
söngfuglarnir þagna.
Niðrá þingi mæta menn,
og málum flestir ragna.
.
-------------------------------------
Svervur járnið tímans tönn
tærir upp og étur.
Svervur járnið tímans tönn
tærir upp og étur.
Hvenær verður sagan sönn
um Sigmund D og Pétur?
Fækkar en í fínum hóp
Framsóknarmanna.
Fækkar enn í fínum hóp
framsóknarmanna.
Undarlegan skrattinn skóp
skrýl er ætt´að banna.
----------------------------------
Hallar senn að hausti
hugan læt ég reyka.
Hallar senn að hausti
hugann læt ég reika.
Binda á nú í nausti
námsmenn, gamla, veika.
Fölna mjög á Munda
marglit krónublöðin
Fölna mjög á Munda
marglit krónublöðin.
Er haustsins skuggar skunda
þá skapvond gerist lundin.
-----------------------------------
Morgun stundin ljúfa lætur
ljósið inn í hjörtun,skína.
Morgun stundin ljúfa lætur
ljósið inn í hjörtun, skína.
Þegar loks ég fer á fætur
og fæ mér kaffi vökvun mína.
Ég sagði í gamni við Gróu á Leiti:
"Geturðu aldrei hætt að þvaðra?"