Iss, ég stel bara eld jafnóðum úr hinum þráðunum. Það verður ekkert vandamál.
EKKI SKEMMA FYRIR MÉR.
-
Það held ég nú. þetta gerist bara ekki réttara! Auðvelt er að nappa eldinum með því að hnýta 16min þráðinn í báða enda 8 min þráðsins.
Jæja Limbri þú átt rökfræði réttinn!
Svaka er Limbri lengi að hugsa upp nýja þraut.
Já finnst þér ekki???
Athugum það að ég varla gat svarað þessari síðustu, hvað þá að ég geti hugsað upp svona þrautir.
En til þess að gefa frá mér réttinn get ég svosem hent þessari fram.
Ef þú átt 1000 kr. bætir svo við 40 kr. þvínæst bætast við 1000 kr. og svo 20 kr. þá færð þú 1000 kr. bætir þvínæst 30 kr. og öðrum 1000 kr. að endingu færðu svo 10 kr.
Hvað áttu margar krónur ?
-
Eru ekki bara þessar fyrstu 1000 kr. eign þess er á þær? eða ertu bara að spyrja mig hvað ég eigi margar krónur í alvöru?
Einhverra hluta vegna er heilastarfsemi mín ekki 100% í dag en ég giska á 4100kr
OG ÞAÐ VAR RÉTT.
BING BING BING BING BING BING.
Þú hefur hérmeð unnið 3,20 fallt það sem þú lagðir undir. Og þar sem þú lagðir ekkert unnið hefur þú unnið 3,20 falldan skammt af engu.
En allavegana er rétturinn þinn núna. MÚAHAHAHAHAHAHAHA
-
Jamms, gildran er 5000. Alveg ótrúlegt hvað margir falla í þessa gildru. Prufaðu að leggja þetta fyrir fólk þegar það er í glasi.
-
Ég féll í gildruna en ákvað að svara ekki því ég kann engar svona þrautir. Heppinn að gera mig ekki að fífl. Úbbs!
Hjá oss var þetta öfugt: Vér féllum eigi í gildruna en fannst þetta svo augljóst að vér töldum oss hafa fallið í gildru og svöruðum því eigi.