Fyrsti nafninn fyrir Danmörk réði. Sveinn tjúguskegg.
Fræga rannsókn jöklum annar léði. Sveinn Pálsson
Þriðji hengdur, það fyrir vestan skeði. Sveinn skotti Axlar-Bjarnarson
Þriðja hefði fjórði leyst með gleði. Andri lögfræðingur
Snilldargáta.
Snilldarsvar!
A)
Trúnni sinnir talsvert guli tappinn sá.
Þekktan bastarð þessi á
þrjótur kunnur suðurfrá.
Þessi hefur staðið óleyst hér í ansi langan tíma.
A)
Trúnni sinnir talsvert guli tappinn sá.
Þekktan bastarð þessi á
þrjótur kunnur suðurfrá.
Þessi hefur staðið óleyst hér í ansi langan tíma.
Sennilega er það fyrir það að hún er snúin.
Samkvæmt Vikipedíu var Vilhjálmur bastarður sonur Roberts I.
Það hjálpar mér samt ekki við framhaldið.
Þar að auki sé ég ekki að þetta sé fjórmenningagáta........
Ég held að það sé meinalaust að inn á milli séu þremenningagátur í braghenduformi eða öðru þríkvæðu.
Aftur á móti hef ég ekki minnstu hugmynd um hver lausins getur verið. Er búinn að máta hana við Reverend Tim Lovejoy úr Simpsons-þáttunum, Dalai Lama og Sun Myung Moon en án árangurs. Er líka búinn að prófa Barack Hussein Obama senior á seinni vísbendinguna en hef svo sem ekki elt ólar við alla kynblendingaforeldra heims. Þeir kváðu vera margir. Svo er það þriðja vísbendingin; suðurfrá. Hvar er það? Í Reykjavík? Keflavík? Selfossi? Útlöndum (mínus Grænland og Svalbarði)? Og hver er ekki skúrkur í þeim skítapleisum öllum? Sem sagt: erfitt. Gríslingur er vanur að leysa allt, hversu erfitt sem það er en hann hefur ekki sést lengi og hefur sennilega verið slátrað fyrir jólin eins og svo títt er um svín.
Gráfíkja Bernharðs, hans Fábjána-frú.
Á frönsku má pest þeirri í Séraphin snú.
Vel gat sá hneggjað og Berg var hans bú.
Bjarg-vættar galtarins taðraufar-sú.
(Gleymið svo ekki Væna Grétari og óleystu gátuinni hans.)
Eru þetta þrír kvenmenn og einn karlmaður?
(Ræð ekki við Væna-Grétars-vísuna frekar en aðrir.)
Kynusklinn er með ráði gerður, Billi, nú ertu búinn að koma upp um það. Sem er gott.
Svarið felur í sér fjóra aðilar, eitt nafn, eitt kyn. [LEIÐRÉTT: (sbr. innlegg neðar á síðunni) TVÖ LÍFFRÆÐILEG KYN]
Ég luma á vísbendingu ef með þarf.
Flosi Ólafsson bjó að Bergi í Borgarfirði og hneggaði inn á hljómplötu. Brennu-Flosi er þá væntanlega einhvers staðar. En hvar, veit ég ekki.
Ég hef líklega aðeins vanmetið þessa gátu. Einn þeirra sem vísað er til þarna er úr sjónvarpsþáttunum Krúnuleikum.
A)
Trúnni sinnir talsvert guli tappinn sá.
Þekktan bastarð þessi á
þrjótur kunnur suðurfrá.
Þessi hefur staðið óleyst hér í ansi langan tíma.
?
Robert Baratheon
Robert Mugabe
Gráfíkja Bernharðs, hans Fábjána-frú.
Á frönsku má pest þeirri í Séraphin snú.
Vel gat sá hneggjað og Berg var hans bú.
Bjarg-vættar galtarins taðraufar-sú.
(Gleymið svo ekki Væna Grétari og óleystu gátuinni hans.)
Flosi Fífldal?
?
Flosi Ólafsson
?
A)
Trúnni sinnir talsvert guli tappinn sá.
Þekktan bastarð þessi á
þrjótur kunnur suðurfrá.
Þessi hefur staðið óleyst hér í ansi langan tíma.
?
Robert Baratheon
Robert Mugabe
Nei ekki alveg.... þessi þriðji var stórtækur í Ástralíu og fyrsti er úr sjónvarpsþáttum. Þetta var kannski allt of margræð gáta.
Ned Flanders.
Eddard "Ned" Stark (sem er þó sennilega bara frændi Jóns Snæs).
Ned Kelly?
Ég verð að halda til streitu eigin yfirlýsingum um að játa hvorki né neita nöfnum nema það sem rökstutt með vísan til a.m.k. þriggja lína.
Hinta er þörf. Bjarg-vættur er hér ekki með bandstriki að ástæðulausu. Sem sagt vættur í bjargi. Gráfíkja er ung kona sem ber girnd til gamalmenna.
*LEIÐRÉTTINGAR ER ÞÖRF* á því sem ég hélt fram áður. Einn fjórmenninganna er af öðru kyni, líffræðilegu, en hinir þrír.
Ned Flanders.
Eddard "Ned" Stark (sem er þó sennilega bara frændi Jóns Snæs).
Ned Kelly?
Rétt.
Ég held að þetta gæti verið svona
?
Flosi Fífldal gæti heitið Séraphin á frummálinu?
Flosi Ólafsson (Það er svo geggjað að geta hneggjað, Stóra-Aðalberg)
Flosi Þórðarson bjó á Svínafelli
Já, þetta er rétt sem komið er.
Flosi Fífldal heitir Séraphin Lampon á frummálinu.
Bjarg-vættar galtarins taðraufar-sú þýðir því Taðraufar-gylta Svínafells-áss, ein eins og kunnugt er sagði Skarphéðinn að Svínafellsásinn gerði Flosa að brúði sinni (syrði hann í taðraufina) á níu nótta fresti.
Og skv. því sem þegar er komið fram í vísbendingum mínum þá er Flosi nr. 1 kona. Hver er hún?
Ég er ekki mikið fyrir að gúgla hugsanleg svör við gátum hér, þó það komi fyrir, en þá aðallega til að glöggva mig á einhverju sem mig grunar.
Svo skrifaði ég Flosi í leitarstikuna. Margir Flosar voru kynntir til sögunnar, en þegar ég skoðaði myndirnar voru þær allar af Fabiönu nokkurri Flosi, 35 ára, og manni hennar sem er kallaður Bernie og er með mikið grátt hár og þ-vaxinn að framanverðu, myndarlegur maður og lítur út fyrir að vera rétt yfir sextugt.
Þannig að nú er hægt að loka hér. Það er enginn leikur í gangi, allar vísur botnaðar eða því sem næst og allar gátur leystar.Ljómar upp