Enginn hefur ennþá frétt
úrslit þeirrar sögu
Kannski getum saman sett
sögu hér í bögu.
Æfintýrin enda vel
ef engin slysin verða.
Æfintýrin enda vel
ef engin slysin verða.
Útí mýri enn ég dvel
með öxi milli herða.
Voðalegan verk ég fékk
í vinstri herð.
Voðalegan verk ég fékk
í vinstri herð.
Skelfilega skakkur gekk,
nú skunda verð.
Ef ég næ í endastað
við annan mann,
Ef ég næ í endastað
við annan mann,
þá mun ég kátur brjóta blað
sem bögglað fann.
Ég gleymdi bæði stund og stað
en strammaði mig af
Ég gleymdi bæði stund og stað
en strammaði mig af.
Samt áfram moka úldið tað
sem Árilíus gaf.
Út ég held á annan veg
sem eitthvert leiðir mig.
Út ég held á annan veg
sem eitthvert leiðir mig.
En gæfan er í taumi treg,
hún treður þrengri stig.
Eg kom til hans í kaffi
og kleinuhringi
Eg kom til hans í kaffi
og kleinuhringi.
En Stebbi var í straffi,
nú stro ég kingi.
Ég er enn að jafna mig
á jólaglögginni.
Ég er enn að jafna mig
á jólaglögginni.
Best að fara að baða sig
úr brandídögginni.
Eitrið mitt ég einatt tek
óblandað af stút
Eitrið mitt ég einatt tek
óblandað af stút.
Úfna túngu út ég rek
og oní þynntan lút.
Víst er best að vara sig
á vörgum þeim
Víst er best að vara sig
á vörgum þeim
Styrjöldin mun þjaka þig
og þennan heim.
Megavöttin vantar hér
vatnsföllin skal virkja
Megavöttin vantar hér
vatnsföllin skal virkja
og svo reisa iðjuver
áls og ríkisstyrkja.
Mér var færður grjónagrautur
í gustukarskyni.
Mér var færður grjónagrautur
í gustukarskyni.
Af honum varð býsna blautur
er bragðaði á vini.
Ef að þú vilt aftur sjá
anganóruna,
Ef að þú vilt aftur sjá
anganóruna,
laga vinur þarftu þá
þarmaflóruna.
Nýlega var tekin törn
á tæknimálunum
Nýlega var tekin törn
á tæknimálunum
Framleiðum nú betri börn
með bólgnu nálunum.
Hætt er á að heimstyrjöld
hefjist innan tíðar.
Hætt er á að heimstyrjöld
hefjist innan tíðar.
þreyjum við út þessa öld
Þá kanski bara síðar.
Engum þætti árangri,
Af svona miklum látum.
Engum þætti árangri,
af svona miklum látum
illa varið ef af svangri
úlfahjörð við státum.
Út í stríð er ætt af kappi,
allir vilja morðin fremja.
Út í stríð er ætt af kappi,
allir vilja morðin fremja.
Nútíminn með nýju appi
má náðina um semja.
Ógnin nálgast okkar jörð
aldrei virðumst læra
Ógnin nálgast okkar jörð
aldrei viðumst læra,
að Kaninn stendur styrkan vörð,
þó stríðin geisi löng og hörð.
Um það hafa ýmsir rætt
en ekki talið mikils virði