Fórstu núna fram úr þér?
Finnst þér gott að borða smér?
Fóðraðir þú heilan her?
Fórstu núna fram úr þér?
Finnst þér gott að borða smér?
Fóðraðir þú heilan her?
Hver á þetta séniver?
Langar þig í lautarferð?
Langar þig í lautarferð?
Laukstu við þinn morgunverð?
Langar þig í lautarferð?
Laukstu við þinn morgunverð?
Nældirðu í nýja gerð?
Langar þig í lautarferð?
Laukstu við þinn morgunverð?
Nældirðu í nýja gerð?
Nartaðirðu' í geislasverð?
Ertu loksins alveg bit?
Ertu loksins alveg bit?
Er þá farið allt þitt vit?
Fékkstu að smakka fugladrit?
Ertu loksins alveg bit?
Er þá farið allt þitt vit?
Fékkstu að smakka fugladrit?
Er Fóranninn vort trúarrit?
Kannist þér við Andrés Önd?
Kannist þér við Andrés Önd?
Á hann víðlend beitilönd?
Kannist þér við Andrés Önd?
Á hann víðlend beitilönd?
Á hann landið strönd í strönd?
Kannist þér við Andrés önd?
Á hann víðlend beitilönd?
Á hann landið strönd í strönd?
Styrkti hann sín ættarbönd?
Veistu hvað? Nú, veistu það?
Veistu hvað? Nú, veistu það?
Veit ég það? Nú, eins og hvað?
Veistu hvað? Nú, veistu það?
Veit ég það? Nú, eins og hvað?
Eins og hvað? Hver Ingu bað?
Veistu hvað? Nú, veistu það?
Veit ég það? Nú, eins og hvað?
Eins og hvað? Hver Ingu bað?
Fór Inga í bað? Er heimilt að ...?