Drottin, engla, Krist og co.
kvaddi ég með stæl og hló,
en ætla í lífsins ólgusjó
Óðni best að treysta ... og þó-
r.
Þór er sagður þrumuguð
og þrusu pía.
Hann okkur hér gaf ofsastuð,
og einum svía
r.
Þessi ætti að vera jafn mikil lífsspeki, bæði með og án fimmtu línu.
Ég er að fara að byrja bú
byggja hlöðu, ráða hjú
rækta tún og finna frú
en fyrst af öllu ná í kú-
k.
Do, re, mí ég mjög vel kann,
og máske líka fa.
So og tí ég síðan fann,
nú syng ég allgott la
g.
Þó að sumum finnist fnæs
og fleiri undan skelfi
finnst mér alltaf nokkuð næs
niðurinn í elvi-
s
Ég töxinn fann (sem tældi þig)
og tók fram nýju skóna.
Á ballinu svo bræddi mig
er blikkaði mig Jóna
s.