[i][b]
Mundu það kvers mærin bað
er mat með hraði ástu
Raunamæddur karlinn kvað
kannski frúnni brástu.
-----------------------------------
Augum kvössum Lína lítur
Lárus karl sinn á:
Mundu það hvers mærin bað
er mat með hraði ástu:
„Viltu maður með í bað?“
Á meltu staður lástu.
Matgræðgin er mikil synd
og mörgum þung í skauti
Matargræðgin er mikil synd
og mörgum þung í skauti
Mjög svo leysir Valdi vind
af vatnsblönduðum grauti.
------------------------------------------
Mikið gengur Katla gleið
götuna þröngu.
Katla mikið gengur gleið
götuna þröngu..
Fékk hún, og varð fjaska leið,
fötuna röngu.
Sjáðu, þennan sundmaga.
Seljum hann í lím.
Sjáðu þennan sundmaga.
seljum hann í lím,
Fyrir æru dómsdaga
dæmalaust þettað hím
-------------------------------------
Þettað er nú bölvað bullið,
botnaðu karlinn minn.
Þettað er nú bölvað bullið,
botnaðu karlinn minn.
Éta skal ég glaður gullið,
glópa, þá ég finn.
Allt er búið enn sem fyrr,
aftur brátt það hefst.
Allt er búið enn sem fyrr
aftur brátt það hefst.
Ennþá stendur kalinn kyrr
kemst er færi gefst.
-------------------------------
Karlinum varð brátt í brók,
blöskraði þettað frúnni.
Karlinum varð brátt í brók,
blöskraði þetta frúnni
sem engan fann á Lappa lók.
Að lokum gekk af trúnni.
Sagt ég hef og segi enn:
Sumarið er tíminn
Sagt ég hef og segi enn:
Sumarið er tíminn
þegar ég á búknum brenn
og bregst mér neyðarsíminn.
Allt það sem ég áður reit
annar hefur skrifað.
Allt það sem ég áður reit
annar hefur skrifað:
Í mér bærist hugsun heit
hef ég þettað lifað?
----------------------------------
Já og líka mikið meir
mörgum víst til ama. ( Líka gamans )
Já og líka mikið meir
mörgum víst til ama. ( Líka gamans )
Þótt ég yrki auman leir
mun öllum fjandans sama.
Það er af sem áður var
er æskuþróttinn hafði
Það er af sem áður var
er æskuþróttinn hafði,
ég af öllum öðrum bar
og ekkert niður lafði.
Ætli komi önnur lægð
innan skamms, af hafi?
Ætli komi önnur lægð
innan skamms, af hafi?
Eða fáist verðug vægð
úr vetrar dýpsta kafi?
Allt þetta andskotans rok
hefur örmagnað heila þjóð
Allt þetta andskotans rok
hefur örmagnað heila þjóð.
Þettað árans fjaðra fok
fennir yfir vora slóð.
-------------------------------------
Horvi út að hafsins brún
hugan læt ég reyka.
Horvi út að hafsins brún
hugan læt ég reyka.
Fyrrum sigldi um fiskatún
fleyi á með stöng og spún.
Letimók í léttum sloppi
laga kaffið rommi með.
Letimók í léttum sloppi
laga kaffið rommi með.
Ó hve vel það yljar kroppi,
ekkert betra getur skeð.
Sunnudagur, sef ég út, ....
en sef þó varla úti.
Sunnudagur, sef ég út, ....
en sef þó varla úti.
Bregð mér svo á Baggalút
og bergi mjöð af stúti.
Með aldrinum til feigðar finn
og fyllist kvíða
Með aldrinum til feigðar finn og fyllist kvíða.
Mun ég verða skar, og skríða?
Skildi verða langt að bíða?
Letin alveg ætlar mig
allifandi að drepa.