Reitir hafa rakað saman
rekstrareiningum.
Ljúft er að eiga leiðitaman
larf í fjórflokknum.
Fjórflokks ýmsir farg í spá,
fráleitt gripnum hrósa.
Furðulegt þeim finnst að sjá
að flestir þetta kjósa.
Kjósa bændur kýr og fjós.
Kneifa svelgir öl úr dós.
Gap'á þingi gáfnalós.
Gullið klippir vergjörn drós.
Drósin hefur dregið það að draga saman
seglin eftir síðsta túrinn,
sjá hvað hún er núna stúrin.
+'
Stúrinn er hann litli Lalli
lötrar niður götuna.
Þar er líka pöru Palli,
prakkarinn með skötuna.
Skötuna ég skríð með heim,
skelfing er hún rýr.
Hantera með höndum tveim,
hér er matur nýr.
Nýja Ísland engu breytt
allt í sama fari.
Ennþá sama þjóðin þreytt
þreytt á engu svari.
Svarið get ég, svart nú er,
svíða mun það lútinn,
að Bölverkur af baki fer
og beina leið í kútinn.
(Ef ég var ekki að misskilja.)
Kútinn tek í fangið fljótt
fæ mér sopa stóran.
Lífið virðist langt og mjótt,
ljót er árans hóran.
Horan, Niall, er hetja Írsk sem hefur sést
á feisbúkk þar sem flippað er
og frægð í korter skippað er.
https://www.facebook.com/pages/Niall-James-HoranIs-my-Irish-Hero/163281383821096
Er á spani spanjóinn
spóa álfur mesti.
Svona er það Malli minn
og marga hefur lesti:
Lestin brunar lengra, hraðar,
líst mér vart á það.
Ætli hún nokkuð nemi staðar
nema á verri stað?
Staðabraut er stundum fær,
en stundum ekki.
þar býr margur maður ær,
þá marga þekki.
Þekkilegur þótti hann í þingkosningum.
Illu heilli víst hann vann,
nú vélar hann með okkar rann.
Rann á svelli Sveinlaugur
sveittur er hann núna.
En hugumstóri Hrolllaugur
hentist undir brúna:
Brúnaþungt er barnið nú og ber sig illa.
Loforð voru látin falla,
lyga- ætti að fella -kalla.
Kalla nú á Billa bil
bestan hér á lúti.
Ef þú hefur tíma til
tyltu þér hjá mér úti.
Úti máttu alltaf vera,
innipúkar hrúta skera,
ekki vil ég bein þar bera,
betr'er opna jörð að þvera.