Finnst mér oft að fundahöld
fáu skili af sér.
Oft er sú hin setan köld
sem ætluð var mér.
Fýldur er sá forstjórinn
fremur öðrum mönnum
Fýldur er sá forstjórinn
fremur öðrum mönnum
sem að kreppir kalskórinn
í kuldatíð og fönnum.
Inni skaltu ætíð halda til
með ögn af rommi þínum bolla í.
Inni skaltu ætíð halda til
með ögn af rommi þínum bolla í.
Heiðurskarlinn góði Billi bil´´
bregðum oss á ærlegt fyllerí.
--------------------------------------
Við skulum gæskur þreyja þorrann
þeysinn góan reynist oft.
Við skulum gæskur þreyja þorrann
þeysinn góan reynist oft.
Reynum að forðast að magna upp Morrann,
í matnum skemmda hann leynist oft.
Hákarl og brennsa ég býð þér nú,
og bragðmikil svið og rófustöppu.
Hákarl og brennsa ég býð þér nú,
og bragðmikil svið og rófustöppu.
rengi og punga auk mjólk úr kú,
og ágætis pylsu úr þjöppu.
Vér þökkum þér veitingar
þykir mér aldeilis frábært,
Hákarl og brennsa ég býð þér nú,
og bragðmikil svið og rófustöppu.
rengi og punga auk rjóma úr kú,
og rosalega pylsu úr þjöppu.
Vér þökkum þér veitingar
þykir mér aldeilis frábært,
hér smökkum smérskreytingar
smá fer í gerbleytingar.
Erfið reyndist þrautin þín,
Þrask, en lausn er komin.
Erfið reyndist rautin þín,
þrask,en lausn er fundin.
Hér er bara gleði og grín
gáski, svo hressist lundin.
-----------------------------------------
Nú er úti veðrið vott
væta um stræti rennur.
Nú er úti veðrið vott
væta um stræti rennur.
Ekki er gott að þerra þvott
þó að sjáist glennur.
Stamp og velting stórsjó í
stóð ég varla af mér.
Stamp og velting stórsjó í
stóð ég varla af mér,
en fengsæl mið og fiskirí
færðu þorsk og karf'mér.
Eitt er víst og það er það
að þessi dagur ljómar
Eitt er víst og það er það
að þessi dagur ljómar
ætla ég nú út með hrað
með allar pyngjur tómar.
Á því hef ég alla trú
að þar nokkuð gefist.
Á því hef ég alla trú
að það nokkuð gefist.
Að kætist menn í Timbaktú,
og tímalausir efist:
--------------------------------------------
Karlinn tollir í tískunni
tuðar Manga gamla:
Karlinn tollir í tískunni
tuðar Manga gamla:
Nær hann því ey með nískunni,
nú má í aurum svamla.
Næstum tveir af töldum fimm
telja Simma góðan.
Næstum tveir af töldum fimm
telja Simma góðan.
Ýmsir hinna örlög grimm
ætla, og vilja glóð’an.
Nú er Þorri, það er gott,
þá ég fæ að éta.
Nú er Þorri, það er gott,
þá ég fæ að éta.
Þræll fær bæði þurrt og vott,
og þarf svo mjög að freta.
Ekki þykir undarleg
auðs- og gróðahyggjan.
Ekki þykir undarleg
auðs- og gróðahyggjan.
Mammon ekur auðan veg,
engir vilja styggj’ann.
Hákarl, rengi, hangikjöt
hamsatólg og slátur
Hákarl, rengi, hangikjöt
hamsatólg og slátur
át ég sæll, og á mig göt,
er því nokkuð kátur.
Góu-nammið getur ey
gengið nú um Þorrann.
Góu-nammið getur ey
gengið nú um Þorrann
og múmínálfar segja svei
sjái þeir í Morrann.
Svellin úti svitna nú
sverfur að þeim hiti
Svellin úti svitna nú
sverfur að þeim hiti,
og að segja ætlar þú
ekki neitt af viti.
Dýrt að kveða kannski er sport
ef kanntu frá að segja