Já.
Strunsar inn á sviðið og skellir á eftir sér
MISSTI ÉG AF EINHVERJU?
Nagar löpp sem þvælist fyrir
Já, þjer misstuð af árshátíðinni 2012 líkt og allir hjer. Hafi einhver ekki misst af árshátíð sem eigi var haldin væri þar um áhugaverða þversögn að ræða sem áhugavert væri að fá nánari upplýsingar um.
Sú hátíð var kláruð af 2007. Og lukkaðist svona ljómandi vel! Ljómar eins og gaukur á grein
Það var geðveikt skemmtileg hátíð... alveg þangað til ég ældi á grindverk... í Grafarvogi.
Ah já, árshátíðin 2007 var sérlega vel heppnuð. Getum við ekki bara haldið allar árshátíðir 2007? Eða ger(ð)um við það kannski, var það þess vegna sem hún var svona skemmtileg? Klórar sér í höfðinu
Allar árshátíðirnar voru haldnar 2007. Þær hófust nefnilega með ferðalagi í tímavjel sem eigi hefur verið upplýst um fyrr en núna.
ÉG PANTA AÐ MÆTA Á ÁRSHÁTÍÐ 2014 Í JÚNÍ!