— GESTAPÓ —
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 4/9/13 13:26

Hér er kominn nýr leikur, e.t.v. eilítið í anda RÚV þýðingaþráðsins. (Höfum við nokkuð gert þetta áður?)

Nefna skal einhverja kvikmynd og sá næsti í röðinni skráir lýsingu á myndinni. Ekki er nauðsynlegt að lýsingin passi nákvæmlega við raunverulega atburðarás ræmunnar.

Dæmi:

Falling Down

Kvæði:

Skrifstofumaður reiðist á hamborgarastað.

Pretty Woman

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 4/9/13 13:34

Land Rover hangir upp í tré.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 4/9/13 13:40

Og næsta kvikmynd er?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 4/9/13 13:43

Offari mælti:

Land Rover hangir upp í tré.

Er þetta ekki nóg?

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 5/9/13 00:10

Þó svo að ég hafi ekki hugmynd um að Hann Brús Willis hafi ekið Landrover uppí næsta tré . þá sá ég hann stúta þyrlu með löggubíl í sjónvarpstækinu mínu um daginn.

‹Glottir eins og fífl›

En næsta mynd heitir að sjálfsögðu Ástir og Örlög í geimnum eða Avatar á engilsaxnesku

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 5/9/13 00:24

Kvæði:

Útsendarar óvina ríkisins ræna avatar-mynd háttsetts Gestapóa er reiðist þessu mjög og heitir því að linna ei látum fyrr en óvinurinn fær að komast í kynni við hið ógurlega ELIPTON.

Næsta mynd er Delicatessen.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 5/9/13 00:28

Fjallar um fátæka konu sem fer að búa til krásir úr gestum og gangandi til að eiga í sig og á, einnig fer hún útí að skera út hjálpartæki ástarlífsins úr lærleggjum sem verða gríðarlega vinsæl‹dregur fram heilaspuna›

Næst á dagskrá er Terminator eða Tortím-öndin

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 5/9/13 00:32

Kvæði:

Straumönd nokkur fær aðstoð frá Sigfúsi Stuð við að ræna tímavjel tortryggins vísindamanns. Vísindamaðurinn hyggst hefna sín með því að láta kaffæra straumöndina í risarjómatertu og verður í kjölfar þessa æsispennandi atburðarás.

Næsta mynd er Young Frankenstein.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 5/9/13 00:40

Kvæði:

Ungi Franklín Steinn
Hann fer offari í saumatíma og fær áðurnefndan Sigfús stuð og Ekkjuna í þarseinasta þætti til að aðstoða sig við frumlegan saumaskap úr kjötstykkjum sem Sigfús tekur svo uppá arma sína og  hleypir smá lífi í tuskurnar, Franklín er eitthvað dasaður eftir þessa meðferð og skellir sér á Vog, og uppúr því hefst æsispennandi atburðarrás, full af lífi og dauða.

Næst á dagskrá eru Kjeddlingarnar í Kynlíf á Kópaskeri , eða Sex in the city

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 5/9/13 12:19

Kvæði:

Fylgst er með fjórum miðaldra konum sem klæðast þröngum og niðurskornum klæðnaði með það fyrir augum að halda dauðataki í æskuna. Einstakur smellur fyrir fólk með elliblæti.

Næst skal lýsa myndinni Django óbeislaður.

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 5/9/13 19:13

Kvæði:

Æsispennandi sjónarspil meistara Tarantinos. Í myndini eru menn miskunarlaust drepnir á blóðugan hátt. Allt er þó gert með góðum hug og með þá von í brjósti að réttlætið og jafnréttið sigri að lokum. Fimm stjörnu byssureykjandi vestri af gamla skólanum.

Næst: One direction 3D

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 6/9/13 05:21

Kvæði:

Fimm hæfileikalausir, laglausir drengstaular með greindarvísitölu undir meðallagi sem væru að vinna í Bónus ef ekki væri fyrir heila herdeild af lagahöfundum og markaðsfólki, geifla sig eins og hálfvitar fyrir framan farsímamyndavélar í þeim tilgangi að hafa vasapeninga af greindarskertum táningsstelpum bara af því Simon Cowell á von á erfingja og finnst hann vanta meiri pening...
En þú veist... þú skalt samt tótallý horfa á þetta sko.

Nýtt líf.

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 6/9/13 08:00

Kvæði:

 Nýtt líf fjallar um tvo vitgranna er ógurlega krúttilega aulabárða sem eru að leita að hamingjunni,  hamingjan vill ekki  finnast og reyna þeir að beita bellibrögðum , lygum og fortölum til að ná henni til sín  en allt kemur fyrir ekki. En karma kemur þarna og bítur þá í rassinn endalaust þar til þeir gefast upp. Týpísk Íslenssk mynd í betri kantinum.

Næsta á dagskrá Merlin

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Kvæði:

Í þessari bráðskemmtilegu þáttaröð er fjallað um ævintýri seiðskratta nokkurs Merlín að nafni á miðöldum. Seiðskrattinn þarf hvað eftir annað að ljúga, blekka og klekkja á sínum nánustu svo fólk trúi því að hann sé einfeldingur sem hreinsi hrossatað, en ekki í raun seiðskratti sem gæti fengið sjálfan Sæmund Fróða til að skammast sín, auk annara ævintýra. Frábær dægrastytting fyrir alla fjölskylduna.

Næst: Perfumé.

Guð refsi danmörku.
» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: