— GESTAPÓ —
Orðaþröngvun
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4, 5 ... 23, 24, 25  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 17/9/04 16:46

Vladimir Fuckov mælti:

Næstu orð: Múrsteinn, loftmynd, korkódríll, skakviðrasamt

[Bíður spennt. Nagar í blýant.]

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Agúrkan 17/9/04 17:25

Eins og múrsteinn fell úr fjalli
Fell ég niður loftmynd á
Skömm að korkódríll eigi mig japli
skakviðrasamt útlit sé miðum hjá

‹Gubba aðeins en held svo áfram›

Hrönn, rass, húnn, leikur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 17/9/04 23:49

Lítinn hún á Hrönn
hann með bangsa leikur sér
Rann á rassinn á hvönn
roðnaði þá sýnist mér

Næstu orð: Leirburður, leirskáld, bögubósi, stuðlaskortur ‹Eiginlega að gefnu tilefni...›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Agúrkan 18/9/04 12:35

Stuðlaskortur stendur sínu
stærsta fyrir bósa bögu
Leirburður fyrir leirskáldi mínu
leynir þó eigi sögu

Hálviti, gerfigreind, málsháttur, gorkúla

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 21/9/04 12:22

Málshátt ég segi um gerfigreind.
Þó gorkúlur hlaup´ í kekki.
"Íhalds rassgötin illa skeind
og hálfviti logar ekki."

Næstu orð: Jakkaföt, frystikista, Bílanaust og klæjar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 21/9/04 16:16

Ef klæjar þig og kominn ert á ystu
kann ég lausnu vandamála þinna
Þá leggðu jakkaföt í frystikistu
og flýttu þér í Bílanaust að vinna

Afgastúrbína, platínukveikja, hjöruliður, hæstaréttardómari

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Amma-Kúreki 23/9/04 03:27

Í Hæstaréttardóm
Ari Afgastúrbína
Platínukveikja og langaði að sleikja
Hjöruliður Aldrei friður

Næstu orð : Gamall , Fum ,Ræfill , Ragnar

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 23/9/04 09:13

Ræfill er hann Ragnar grey.
Rekur við að vana.
Gamall ekkert getur, svei!
Glæðist fum með kana.

Næst: varnarlið, Bush, vitleysa, sjálfhælinn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
fótboltastelpan 24/9/04 10:27

Bushvildi ei varnarlið
vitleysa sagði Dabbi
Sjálfhælinn setti svo á svið
sjónleik með svolitlu rabbi

fótbolti, öskur, Ferguson, skór

non scholae, sed vitae discimus
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Amma-Kúreki 26/9/04 13:59

Skórinn Skaust í enni Dabba
Skrækir og Öskur frá Ferguson
Flottur er Fótbolti fer ei að labba
Fúl er mín kella og gefur upp von

Næstu orð : Snjall, Gerpi, Hómópati, Lukka

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 27/9/04 23:19

Út við Gerpi geysist snjall
gamall hómópati
Lukkan bíður langt er fall
Liggur þreyttur rati

drífa, mjöll, fálki, masa

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 28/9/04 02:24

Skæðadrífa, skítug mjöll,
skúrkinn hrjáir flasa.
Svífur fálki yfir fjöll
fáráðlingar masa.

Næstu orð: refur - greni - jólatré - pakki

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Amma-Kúreki 28/9/04 07:06

Gamall Refur á Grenimel
Gösslast um með Glens og Spé
Hótar öllu Pakki í Hel
Helgi Hós með Jólatré

Næstu orð : Finnur,Björn,Össur,Sýra

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 28/9/04 11:02

Farveg bullsins finnur Björn.
Fer í mallann sýra.
Össur á því enga vörn
ef á honum er týra.

Næst: Álskalli, afturhald, Kárahnjúkar, uppbygging.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 28/9/04 11:54

Ávallt hlýðir áls-kalli
afturhaldar saurkúkur
Uppbygging og auðs-spjalli
eyðast nú mun Kárahnjúkur

Moldrok, spjöll, kvóti, spilling

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/9/04 13:42

Moldrok spjöll á spildum vinnur
spilling fylgir kvóta
Ekkert grín á Gestapó finnur
grínistana ætt'að skjóta

Næstu orð: Snjókoma, stórhríð, hundslappadrífa, éljagangur

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 28/9/04 16:10

Heldur mér þykir nú hundslappadrífa
herja á landann að sinni
snjókoma snúin éljagangur ey hlífa
stórhríð og mál er að linni

Næsta orðaþröng:
gluggi, kjóll, undur og hestur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/9/04 17:14

Undur sjá má undir kjól
undirfötum undir
inn um glugga gægist fól
og grillar hestalundir

Næstu orð: asni, api, antilópa, andarungi

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5 ... 23, 24, 25  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: