Hér er betri vísa, vinir, veljum stúf,
raulum svo um rauðan skúf.
Ég á við að mér fannst fyrri vísa Texa hér á undan betri en mín, sem er um sama efni.
Regína er mögnuð mær, þó minni á stúf.
Og sínum gjanan sveifli úf.
Skúfi gleyma glatt nú má ei góði minn
Hrund þó eigi huga þinn
Þinnum spíra þegar drekka þarf mjög hratt
annars leggjust undir flatt
Flatt er hey á flöt, og bráðum fennir að,
eða rignir oní það.
Það er af sem áður var í okkar hjörð
nú yfir göngum auðan svörð.
Svörður kólnar haustsins hret og hríðarfok
Napurt verður norðanrok
Rok er úti, rigning mikil, rökkvar og,
loft- nú hrunið hefur vog.
Vog a leggjast fíklafólk og fullir enn
Alkohóli hafna menn
Þol mitt hef ég þjálfað upp og þrekið með
Blíð öll hreyfing bætir geð
Geðslegt þýðir gott, en ógeð gælir við
úf, svo kætist klósettið.
Klósettið er kámugt. Ég það klóra þarf.
Svona er mitt ævistarf.
Starf er gott að stunda þegar styttir dag,
nema það sé næturfag.
Næturfag er nauðsinlegt í nánast alla staði.
Upp í rúmi, eldhúsi, eða inn'á baði.
(Sé þetta eitthvað rangt hjá mér, þá óska ég ábendinga þar um enda byrjandi í faginu)
Næturfag er nauðsynlegt á nýjum stað,
í rúmið fer, en fyrst í bað.
Bað er einhver allra versta uppfinning
ef skal forðast útþynning.
Mjók er góð er meginþema mjólkurbús.
Má þér bjóða mjólkurkrús?